Tómas í Pottinum, sem skrifar um fátt annað þessa dagana en einræðistilburði Heimdellinga, bendir á hálf skrítin vinnubrögð á Frelsi.is. Þar er birt aðsend grein, þar sem sett er útá skoðanir eins stjórnarmanns í Heimdalli. Ritstjórn Frelsi.is ákveður hins vegar að bæta aftan við greinina ummælum, þar sem sett er útá greinina, í stað þess að leyfa einfaldlega stjórnamanninum að svara fyrir sig í öðrum pistli. Þetta finnst mér hálf skrítið.
Hins vegar þá fer málflutningur ritstjórnar Frelsi.is meira í taugarnar á mér en vinnubrögð. Ritstjórnin mælir með einkavæðingu bókasafna og þeim finnst lítið athugavert við það að bókasöfn beri aðeins vinsælustu bækurnar. Ég kommentaði á þetta hjá Tómasi, en kommentið birtist hálf skringilega, þannig að ég endurtek það hér (örlítið breytt þó):
Ég verð að segja einsog er að, sem frjálslyndum hægrimanni, þá leiðist mér röksemdafærsla á borð við þá, sem ritsjórn Frelsis beitir:
Þetta “ef það er ekki vinsælt, þá er það óþarft” attitude fer í taugarnar á mér. Bókasafnið í háskólanum mínum á hundruð þúsundir bókatitla. Flestir þeirra titla hafa sennilega ekki verið skoðaðir í mörg ár.
Sumar hagfræðibækurnar, sem ég notaði við mína vinnu höfðu ekki verið teknar út í mörg ár, en þær voru samt sem áður algjörlega ómissandi fyrir mig og mína vinnu. Jafnvel innan fræðigreina hafa menn gríðarlega ólík áhugasvið og jafnvel í stærstu háskólum er það bókað að þúsundir fræðibóka njóti litla, sem engra vinsælda. Þær eru þó oft ómetanlegar þeim, sem hafa þó áhugann.
Ég er hræddur um að sköpun í þjóðfélaginu og akademíunni yrði ansi lítil ef að allir læsu sömu bækurnar, bara þær allra vinsælustu.
By the way, ritstjórn Frelsi.is bætir líka við sínum skoðunum á eftir viðtölum. Til dæmis, þá svaraði Árni Magnússon spurningum þeirra ekki á réttan hátt og því bæta þeir við sínum skoðunum á eftir viðtali við hann. Þetta er kjánalegt, og þá er breytir engu að ég er ekki sammála skoðunum Árna.
Já það er skömm, þeir hafa nú kannski ekki verið að standa sig sem skildi og þess vegna hefur það verið aðal málið.
Það er auðvitað algjör skömm hvað maður hefur verið lélegur að blogga undanfarið. Maður þarf að fara að bæta eitthvað úr þessu eða bara hætta.