[Kastljósþátturinn í kvöld](http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4301727) er með fyndnara sjónvarspefni, sem ég hef horft á á Rúv lengi. Þvílík snilld!
Þetta minnti dálítið á það þegar að Steve Carrell og Steven Colbert duttu í það í Daily Show þætti, sem ég horfði á þegar ég var útí háskóla. Ég held að ég hafi sjaldan hlegið jafnmikið og yfir því myndbroti. Verst að ég finn ekki það myndskeið á YouTube. Ef einhver getur fundið það myndskeið þá býð ég viðkomandi í brúðkaupið mitt
Já, djöfull var þetta fyndið. :laugh:
Þessi Even Stephven klippa sem þú talar um (sem ég er sammála um að er hrikalega fyndin) er reyndar ekki inn á The Motherload. En það eru 9 aðrar Even Stephven klippur þar inni – óendanlega fyndið..
http://www.comedycentral.com/motherload/index.jhtml?ml_video=76430
Of fyndið :laugh:
Jamm, Marý – þetta er skrýtið að þeir skuli ekki hafa þessa klippu, sem er að mínu mati það fyndnasta sem þeir gerðu (allavegana í minningunni) og svo er búið að eyða öllum útgáfunum útaf YouTube, en það er það fyrsta sem maður fær þegar maður leitar á Google.
Þetta var hress Kastljós-þáttur. Þegar Andri var búin þá fór einhver maður að setja ljósaperu og geisladiska í örbylgjuofn.
Magnað.