Hérna er ég klukkan 4 í dag að prófa fyrsta sænska Serrano burrito-inn í Vallingby. Við vorum að taka prufukeyrslu á staðnum fyrir starfsfólkið.
Við Margrét vorum að koma heim rétt í þessu, en það er enn fólk frá okkur útí Vallingby að leggja lokahönd á undirbúninginn fyrir opnunina á morgun.
Ég er hins vegar of þreyttur til að gera meira en að setja inn myndir.
Ég mun vonandi á morgun eða föstudag koma með lengri lýsingu á því hvernig þetta gerðist allt saman.
Til hamingju!
Hvenær kemurðu og opnar stað í Boston? 😉
Innilega til lukku með þetta.
Ef hann smakkast einsog á íslandi þá efast ég ekki um að það er stutt í heimsyfirráð!
Til hamingju!!!
Innilega til hamingju með nýja staðinn. Megi Guð og lukka vera með ykkur í rekstrinum. Núna er bara að koma og opna einn Serrano hérna í Lundi,.. þá eruð þið búnir að sigra heiminn!
Kveðja,.. Borgþór og fjölsk.
Hvenær á síðan að opna http://www.serrano.se?
Það lén er frátekið og gaurinn vildi ekki selja okkur það. En við erum með http://serrano-restaurant.se/.
Til hamingju!! Lýst vel á þetta. Vonandi gengur ykkur vel.