Jólin búin

Ok, jólin búin og því er ég búinn að taka niður jólaútlitið á síðunni. Smelltu á Refresh ef útlitið er eitthvað skrítið. Allavegana, þá ættu Vestmannaeyingar að geta glaðst á ný. Er ekki frá því að ég fíli gamla útlitið bara nokkuð vel eftir þessa hvíld yfir jólin.

Annars var ég að horfa á McWorld í beinni á netinu, sem er alltaf hátíð fyrir okkur Apple aðdáendur. Það var margt skemmtilegt kynnt. Aðallega nýjar útgáfur af forritum, sem ég nota mikið einsog iPhoto og svo voru kynntir litlir iPod: iPod mini, sem virka flottir.

5 thoughts on “Jólin búin”

  1. Ef þú vilt. Ég held að ég eigi meira að segja ættir að rekja til Vestmannaeyja, þó maður sé ekki að monta sig af því 🙂

Comments are closed.