Laugardagskvöld með Einari Erni…

Voðalega er það huggó að vera svona heima á laugardagskvöldi, hlusta á Dylan og taka til.

Er að fara út til Parísar fáránlega snemma á morgun í rómantíska helgarferð með ofurmódeli vinnuferð. Verð þarna í þrjá daga á flugvellinum og þar í kring. Fer því ekkert inní borg.

Það verður í annað skiptið, sem ég hef komið til Parísar án þess að gera nokkurn skapaðan hlut í sjálfri borginni. Er ekki hvort eð er ósköp lítið að gera þar? 🙂


Einsog ég hef oft sagt áður, þá er [John Stewart snillingur](http://junk.haughey.com/Crossfire-John_Stewart.wmv) (35mb myndband – skylda fyrir alla, sem fylgjast með bandarískum stjórnmálum)


Ef þið eruð ekki nú þegar hrædd við ríkisstjórn Bandaríkjanna, þá ætti [þessi grein í New York Times](http://www.nytimes.com/2004/10/17/magazine/17BUSH.html?oref=login&oref=login&pagewanted=all&position) að hjálpa. Mæli sterklega með henni.


Já, og fyrir ykkur, sem vissuð ekki þá er [Osama í Kína](http://www.informationclearinghouse.info/article7077.htm)

6 thoughts on “Laugardagskvöld með Einari Erni…”

  1. Ertu að segja mér að Jon Stewart hafi farið í beina útsendingu á CNN og … sagt þetta … við þessa gaura?

    Jon Stewart er hetjan mín. Hvaða líkur eru á því að hann fáist til að fara í framboð eftir 4 ár??? Þvílíkur snillingur.

  2. Jon er snillingur – loksins sagði kallaði einhver Tucker sínu rétta nafni, aldrei þolað þann mann!! mikið sakna ég þessara þátta – af hverju sýnir Skjár einn Jay Leno en ekki Jon Stewart 🙁 alveg magnað!

  3. DNS færslan þín er alltaf eitthvað steikt, þ.e. að eoe.is finnst ekki, aðeins http://www.eoe.is. Getur þú ekki látið bæta *.eoe.is við DNS entryin þín? Það er svo leiðinlegt að skrifa www

  4. Já, ég var einmitt á fundi með auglýsingamönnum af Skjá Einum, þar sem ég var að reyna að plögga Daily Show. Sagði þeim að það væri fásinna að vera með Leno en ekki John Stewart. Allavegana þegar ég bjó í USA, þá horfði ég á Daily Show nánast hvert einasta kvöld. Snilldar þáttur!

    Og, Scweppes, ég skal tékka þetta með DNS-ið og eoe.is. Safari gerir þetta átómatískt ef hann finnur ekki eoe.is, þá bætir hann við www, þannig að ég tek ekki eins mikið eftir þessu. 🙂

  5. ég er það mikill fíkill að ég fer reglulega á heimasíðuna hans á Comedy Central og horfi á brot úr þáttunum :blush:
    Stofnum Daily Show aðdáendaklúbb og þá kannski fáum við þáttinn á Skjá 1 :laugh:
    btw. Hvar horfir þú eiginlega á baseball?? Alltaf gaman að fylgjast með lokasprettinum í “world” series…

Comments are closed.