Neðansjávarmyndir

Veit einhver hvar ég get keypt [svona vatnsheldan kassa](http://www.amazon.com/gp/product/B000EVQ0PO/ref=sr_11_1/102-0319617-6090526?ie=UTF8) utan um myndavélina, sem ég ætla að kaupa mér?

B000EVQ0PO.01._AA280_SCLZZZZZZZ_V57070691_.jpg

Ég get ekki keypt þetta í gegnum Amazon UK þar sem þeir telja þetta vera raftæki og senda því ekki til Íslands. Ég þarf helst að kaupa þetta á næstu tveim vikum.

17 thoughts on “Neðansjávarmyndir”

  1. Ef ske kynni að þú komir við í Singapore áður en þú ferð að kafa… sem er kannski ólíklegt… þá er það víst besti / ódýrasti staðurinn til að kaupa diving equippment já og ekki heldur slæmt fyrir *raftæki.

    Ég get bent þér á hvar í singapore þú ættir að fara.

  2. það er engin ástæða til að nota shopusa ef verslað er við BH eða Adorama, þeir senda beint til íslands með ups eða fedex.
    En fyrir hvaða ertu að fara að nota?

  3. úps, þetta var svona sambland af fyrir hvaða myndavél, og hvaða myndavél ertu að fara að nota? :tongue:

  4. Ok, takk kærlega 🙂

    Ég kíki þá í Beco og svo á BH photo.

    K, ég ætla að kaupa mér [þessa imbavél](http://www.dpreview.com/news/0602/06022110canonsd700is.asp) til að taka með mér út. Ekki það að ég er æðislega ánægður með Ixus vélina mína í dag, en þessi er að fá frábæra dóma og mig langar að uppfæra.

    Svo vonast ég til að fara í köfun í fríinu og nenni ekki að nota einnota vélar einsog síðast. Myndirnar úr þeim voru hræðilegar.

  5. Ha kosta hlutirnir e-ð á E-bay?? Ó, hún Hafrún er alltaf að vinna e-ð dót þar þannig að ég bjóst við að þetta væri bara allt ókeypis…. :laugh:

  6. Komdu bara í heimsókn og keyptu þetta hér, og fljúgðu síðan til Bangkok :biggrin2:

  7. Ég hef keypt vörur í gegnum tíðina B&H og þeir hafa alltaf fýnt ótrúlega góða og trausta þjónustu. Ég hef keypt frá þeim hluti að verðmæti 10000$ og alltaf hafa þeir skilað sínu 100%. Einu sinni keypti ég einn hlut fyrir 4000$ og ég var varla búinn að ýta á submit hnappinn þegar síminn hringdi og mér sagt að varan væri komin til landsins.

    Ég mæli mjög sterklega með B&H. Þeir eiga allt til og eru mjög traustir. Ef þú hefur reyndar ekki pantað þar áður þá taka hlutirnir aðeins lengri tíma þar sem þú þarft að staðfesta greiðslukortið sem þú gefur upp. Þegar það er komið þá ertu vel settur hjá þeim.

    Varan er hér.

    Ég er líka ánægður með vélina sem þú keyptir þér. Mjög góður gripur 😉

  8. Takk kærlega, Sigurjón – ég held að ég prófi að panta þetta í gegnum B&H.

    Ég er reyndar ekki búinn að kaupa vélina, en ég á í dag [SD 300](http://www.dpreview.com/reviews/canonsd300/), sem mér finnst algjörlega frábær imbavél, svo að ég get varla ímyndað mér annað en að SD700 sé líka frábær. 🙂

    Ef einhver nennir að svara mér, hvernig væri bara fyrir mig að panta vélina sjálfa í gegnum B&H. Er það hagstæðara en að kaupa þetta bara í Fríhöfninni?

  9. Mér sýnist á öllu að best sé að kaupa hana í fríhöfninni hér. Þ.e. í samanburði við að panta hana frá BHphoto og síðan borga af henni þá tolla og gjöld sem til þarf við komu til landsins. Ég var einmitt að mæla með því sama fyrir félaga minn sem ætlar að kaupa þessa vél. Hann hins vegar býr svo vel að geta keypt hana á meðan hann er úti og þar með sloppið við e-h af gjöldunum. Ekki er síðan verra að fá með 2ja ára ábyrgðina hér hjá Nýherja þegar þetta er keypt í fríhöfninni.

    Vatnshelda dótið myndi ég hins vegar kaupa hjá BH ef það býðst ekki fyrir sambærilegt verð hér heima.

    kv, tobs

Comments are closed.