Tónleikar á Íslandi

Ég var að pæla í því um daginn af hverju það koma svo sjaldan almennilegar hljómsveitir til Íslands. Hérna í Chicago hef ég farið á allmarga tónleika og voru þeir flestir haldnir í sölum, sem eru ekki stærri en Laugardalshöllin.

Reyndar voru tónleikar með Metallica og Rage against the Machine, sem ég fór á með um 35.000 áhorfendum, en flestir tónleikarnir hafa aðeins verið með um 3-5.000 áhorfendum.

Ég fór t.d. fyrir tveim vikum á tónleika með Oasis og Travis, þar sem voru um 3.000 áhorfendur. Það þarf enginn að segja mér að það yrði erfitt að fylla Laugardalshöllina með þessum sveitum.

Eins fór ég á Smashing Pumpkins þar sem voru um 5.000 manns. Wyclef Jean spilaði fyrir um 2000 manns og sama gerðu Method Man/Redman. Manic Street Preachers spiluðu á smá klúbbi enda þekkir enginn þá hérna.

Málið er að ég trúi því ekki að það væri erfitt að fylla Laugardalshöllina með þessum sveitum. Hvernig stendur þá á því að til að mynda í fyrra voru engir almennilegir stórir tónleikar á Íslandi?

2 thoughts on “Tónleikar á Íslandi”

  1. bara svo þú vitir þá eru KORN búnir að spila hér,METALLICA eru að spila í dag,PIXIES bráðlega,G-UNIT bráðlega,PINK bráðlega og
    BLINK 182 bráðlega,,svo það er nóg af hljomsveitum handa þer,en eg var bara að grinast því eg se að þetta er orðið 4 ára gamalt 🙂

  2. Jamm, það er greinilega að einhver hefur lesið þessa færslu mína og ákveðið að bæta úr þessum málum 🙂

Comments are closed.