Money, power and Wall Street – Algjörlega frábær heimildaþáttaröð um fjármálahrunið 2008 og hvernig yfirvöldum í Bandaríkjunum hefur algjörlega mistekist að hafa stjórn á bönkum í kjölfarið. 4 klukkutímar af efni, sem ég mæli hiklaust með.
Asides
The Rise of the Killer Drones: How America Goes to War in Secret | Politics News | Rolling Stone
The Rise of the Killer Drones: How America Goes to War in Secret | Politics News | Rolling Stone. – Mögnuð og allnokkuð ógnvekjandi grein um það hvernig að ómannaðar fjarstýrðar vélar eru farnar að skipta höfuðmáli í hernaði Bandaríkjanna í löndum þar sem þeir eru opinberlega í stríði og einnig í löndum þar sem þeir hafa ekki lýst yfir stríði
Vísir – Öfgar stela umræðu
Vísir – Öfgar stela umræðu. – góð grein frá Þórði Snæ Júlíussyni um þá hundleiðinlegu áráttu margra að tala niður alla kosti Íslands og allt jákvætt sem hefur gerst eftir bankahrun.
Mustang: Nepal’s former Kingdom of Lo – The Big Picture – Boston.com
Mustang: Nepal’s former Kingdom of Lo – The Big Picture – Boston.com. – Myndir frá hinu einangraða Mustang héraði í Nepal, sem var áður konungsdæmið Lo.
I Was a Warehouse Wage Slave | Mother Jones
I Was a Warehouse Wage Slave | Mother Jones. – Þetta er mögnuð grein um aðstæður starfsfólks, sem að afgreiða pantanir fyrir vefsíður í Bandaríkjunum. Aðstæður starfsmanna eru ömurlegar og kröfurnar á starsfsfólk eru fáránlegar.
Bangladess myndir
Bangladesh – a set on Flickr. – Hérna eru myndirnar frá Bangladess ferðinni minni. Ég var í Bangladess fyrir rétt rúmu ári og skoðaði Daka og smábæi í suðurhluta landsins.
Indlandsferð 4: Agra og Khajuraho – a set on Flickr
Indlandsferð 4: Agra og Khajuraho – a set on Flickr. – Ég var að fatta að seinni hluti Indlandsferðamyndanna voru lokaðar öllum á Flickr. Þannig að ég ákvað að opna þær. Hér eru myndirnar frá Agra (Taj Mahal) og Khajuraho.
Confessions of an Ivy League Frat Boy: Inside Dartmouth’s Hazing Abuses | Culture News | Rolling Stone
Confessions of an Ivy League Frat Boy: Inside Dartmouth’s Hazing Abuses | Culture News | Rolling Stone. – Mögnuð grein í Rolling Stone eftir Janet Reitman um bræðrafélög í Dartmouth háskóla. Eflaust er þetta einhliða umfjöllun (einsog Dartmouth nemendur, sem kommenta á greinina, benda á) en þetta er samt sem áður fróðleg grein. Drykkjukúltúrinn er ansi merkilegur og nokkuð mörgum þrepum fyrir ofan það sem ég kynntist á árunum mínum í Northwestern.
Play the Part | This American Life
Play the Part | This American Life. – Minn gamli herbergisfélagi úr háskóla, Ryan Murdock, segir í þessum This American Life þætti frá verkefni, sem hann er að vinna. Ryan vinnur í dag við að búa til heimildamynd um Louis Ortiz, sem er sláandi líkur Barak Obama.
The Man Who Broke Atlantic City – Magazine – The Atlantic
The Man Who Broke Atlantic City – Magazine – The Atlantic. – mjög áhugaverð grein um Don Johnson, sem vann 15 milljónir dollara í BlackJack á nokkrum dögum í spilavítum í Atlantic City.