Uppboð 2006: Bókapakkar

…. Uppboð la la la…. Sjá upplýsingar [um uppboðið hér](https://www.eoe.is/uppbod).

Ég veit að þetta er ekki beint mest spennandi hlutir í heimi, en það verða áhugaverðari hlutir á uppboði á fimmtudag og föstudag. So hold on tight. 🙂

Núna eru það bókapakkar. Það er ég býð bækurnar **saman í einum pakka**. Lágmarksboð í hvorn pakka er 1.000 kall. Uppboði lýkur klukkan 23:59 á laugardagskvöld.

Stephen King pakki

Þetta eru allt Stephen King bækur á íslensku, hard-cover í mjög góðu ástandi:
Úr álögum (Rose Madder)
Umsátur (Cujo)
Visnaðu (Thinner)
Eldvakinn (Firestarter)
Bókasafnslöggan (The Library Policeman)
Flóttamaðurinn (Running Man) – vantar kápu
Háskaleikur (Gerald’s Game)
Furðuflug (The Langoliers)
Örlög (Dolores Claiborne)
Duld (The Shining) – vantar kápu

Allt saman í einum pakka.

Íslensk knattspyrna

Ég seldi þetta á síðasta uppboði, en gaurinn sótti þær aldrei. Þannig að þetta er aftur á uppboði. Þetta eru bækurnar um Íslenska knattspyrnu frá árinu 1981-1993.

13 thoughts on “Uppboð 2006: Bókapakkar”

  1. Býð 5.000 kr. í pakkann um íslenska knattspyrnu! Dugir ekkert minna fyrir þetta málefni.

  2. Ég er til í að fara í 6000 fyrir íslenska knattspyrnu.

    Hvenær lýkur uppboði á þessum bókapökkum?

Comments are closed.