Ég held að ég geti óhræddur haldið því fram að ég er mjög íhaldssamur þegar að kemur að útliti þessarar síðu. Ég hef haldið úti bloggsíðu í yfir 7 ár, en aðeins breytt um útlitið 4-5 sinnum.
Fyrir nokkru færði ég mig frá MovableType yfir í WordPress. Ég reyndi að kópera gamla útlitið og fylla inn WordPress eiginleikana í það skjal. Það gekk hins vegar afleitlega og margir hlutir hafa ekki virkað.
Ég ákvað því að henda alveg gamla útlitinu, finna útlit sem ég fílaði og breyta því aðeins til að gera það að mínu. Ég fann þetta útlit, breytti litaþemanu, myndum og einhverju fleiru og er orðinn verulega sáttur við þetta nýja útlit. Til að breyta CSS skránni notaði ég þetta ótrúlega æðislega forrit. Ég get varla lýst því hvað þetta forrit er mikil snilld.
En allavegana, endilega látið mig vita hvernig þetta lítur út og hvort að eitthvað sé í ólagi. Ég mun sennilega halda áfram að laga þetta eitthvað til, en ég held að þetta sé voðalega flott fyrir nýtt ár.