« P R | Aðalsíða | Tónleikar »
Hannes og Sigurður G
Hinn gríðarlegi hugsjónamaður Hannes Hólmsteinn, sem gleymir af einskærri tilviljun hugsjónum sínum á nákvæmlega sama tíma og Davíð Oddson, var í Íslandi í Dag í viðræðum við Sigurð G. Guðjónsson.
Hannes, sem ég hélt mikið uppá á unglingsárum mínum, hélt áfram að falla í áliti hjá mér. Hann hrópaði m.a. að Jón Ásgeir væri að undirbúa valdarán á Íslandi og svo eyddi hann helming af tímanum í að spyrja Sigurð G. hvort honum finndist í lagi að Jón Ásgeir myndi kaupa RÚV líka. Hvað það kemur umræðunni við er ofar mínum skilningi.
Allavegana, Sigurður var nokkuð rólegur þrátt fyrir æsinginn í Hannesi. Hann stakk svo all svakalega uppí Hannes þegar Hannes var að tjá sig um rekstrarvandræði Norðurljósa:
Vandamálið við þinn málflutning er náttúrulega það að þú hefur aldrei komið nálægt fyrirtækjarekstri.
Snilld! Mér hefur einmitt fundist fáránlegt hvernig Sjálfstæðismenn hafa fullyrt um rekstur Norðurljósa. Þeir hafa ekki hikað við að predika um afkomu fyrirtækisins án þess að vita í raun neitt um forsendur rekstrarins.
Bæ the way, nennir einhver að segja Hannesi Hólmsteini að hann er ekki góð eftirherma. Hann eyddi síðustu mínútunni í að reyna að vera sniðugur með einhverri eftirhermu. Það tókst ekki.
Já, og þessi óheyrilega vitlausu rök Sjálfstæðismanna um það að gagnrýni DV á Davíð réttlæti þetta frumvarp eru hneyksli. Sjálfstæðismenn ættu að skammast sín fyrir að nota ritskoðun sem rök fyrir þingfrumvarpi. Einhvern veginn efast ég um að Sjálfstæðismenn myndu agnúast svona útí DV ef að Össur Skarphéðinsson lægi undir gagnrýninni í stað Davíðs.
Ummæli (2)
Finnst þér þetta vera ógætilega talað? Það eina er að ég segi að hann sé ekki góð eftirherma. Það er nú ekkert svo slæmt
Ég er til að mynda alveg hræðileg eftirherma og viðurkenni það fúslega.
Það er bara að Hannes virðist æsast mest þegar málsstaðurinn, sem hann ver, er sem verstur. Ég er viss um að hann væri sallarólegur ef hann væri að tala fyrir frjálsum viðskiptum eða skattalækkunum, en hann æsir sig ekki nema hann sé í Jónaherferðunum sínum eða þegar hann ver einhver mistök hjá Davíð.
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
echo `perl K:/Inetpub/danolroot/wwwroot/cgi-bin/backlink/backlink.pl "$HTTP_HOST" "2004-05-03-19-39-02.txt" "$HTTP_REFERER"`; ?>
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Viðskipti | Vinna |Leit:
Síðustu ummæli
- Einar Örn: Finnst þér þetta vera ógætilega talað? Það eina e ...[Skoða]
- svansson.net: Er ekki svolítið ógætilegt að tala svona um Hannes ...[Skoða]
Myndir:
Topp 10:

Ég nota MT 3.121
Er ekki svolítið ógætilegt að tala svona um Hannes - hver veit nema hann komi þá aftur í kommentakerfið