Ég veit að ég er að predika yfir kórnum, þar sem að ég efast um að margir Bush stuðningsmenn lesi þessa síðu. Veit í raun bara um einn, sem er Genni vinur minn. 🙂
En þetta myndband er ansi magnað og sýnir allt ruglið, sem að Bush stjórnin hefur matað ofaní okkur öll (og þar á meðal Davíð og Halldór Ásgríms) varðandi gjöreyðingarvopn og Írak: [Flipp Flopp (.mov skrá – erlent niðurhal)](http://movies.internetvetsfortruth.org/uncovered/uncovered-flipflop.mov)
Schnilld! Nú mættu bara nokkrir óákveðnir Kanar kíkja á þetta teip…
mér fannst best þegar rumsfeld var að segja að það kæmi fyrir að fólk lygi… og oft kæmist það upp með það…
maðurinn er svo fullur af skít :confused:
Jamm, það er ekkert skrítið að Rumsfeld skuli hafa horfið núna í kosningabaráttunni 🙂