Góð lög

Þetta eru æðisleg lög, sem ég er búinn að hlusta á alltof oft síðustu daga.

**What’s so funny about peace, love and understanding** – Elvis Costello. Alveg frá því að ég horfði á Lost in Translation, þá hefur þetta lag verið í uppáhaldi hjá mér. Bill Murray tók þetta lag á karókí bar í Tókíó. Einhvern daginn ætla ég að taka þetta lag á karókí bar í Tókíó. Sanniði til!

**Middle of Nowhere** – Hot Hot Heat. – Á föstudaginn vaknaði ég við þetta lag á XFM. Þegar ég kom inní vinnu goggle-aði ég textabrotinu, sem var fast í hausnum á mér. Nokkrum tíma hafði ég náð mér í lagið og núna er ég búinn að hlusta á það 25 sinnum. Skemmtilegt!

**The Asphalt World** og **The Two of Us** – Þegar ég var unglingur þá eyddi ég í einhverjar vikur mörgum kvöldum í að hlusta á Dog Man Star með Suede. Þessi lög ásamt Wild Ones voru í uppáhaldi. Af einhverjum ástæðum datt ég aftur í þessum pakka. Ekki tengt neinu sérstöku. Var bara að leita að rólegri tónlist og lenti á þessu.

**Forever Young** – Bob Dylan. Af því bara.

**Alabama** – Neil Young – Af því að á eftir Dylan er Neil Young mesti snillingur í heimi.

**Natural Beauty** – Neil Young – Sjá hér að ofan.

6 thoughts on “Góð lög”

  1. skrambinn að þú sért svona ungur og sætur… annars hefði ég reynt við þig. þú ert skemmtilegur. skemmti elgur.

  2. Ég var nú nokkuð ungur þegar Dog Man Star kom út, of ungur reyndar, en ég uppgötvaði þessa plötu um daginn, og hún er ein af 20 bestu sem ég hef heyrt um dagana, einsog ég mun koma inná bráðlega. Bæði lögin sem þú minnist á, auk hins þriðja, eru fokkin frábær,- sem ballaða á The 2 Of Us engan sinn líka í brit-popp kannoninu! hvorki hjá Blur eða Oasis.

  3. Skarpi, Oasis og Blur áttu nú nokkur góð róleg lög. Til dæmis *No distance left to run* og *End of a Century* með Blur og *Talk Tonight* með Oasis.

    *Talk Tonight* var “b-hlið” á Some Might Say smáskífunni, en er engu að síður frábært lag. Sýnir það hversu ótrúlega góðir Oasis voru á þeim tíma þegar að (What’s the Story) kom út.

Comments are closed.