Morðhöfuðborgin Caracas

Samkvæmt þessari frétt þá er mín gamla heimaborg Caracas sú borg í heiminum þar sem flest morð eru framin. Í fyrra voru framin þar 130 morð á hverja 100.000 íbúa. Sú tala er með hreinum ólíkindum. Það jafngildir því að á Íslandi væru framin á hverju ári um 420 morð. Bara í desember voru framin 510 morð í borginni.

Þetta er enn eitt dæmið um hina afleitu stjórn Hugo Chavez, sem nú hefur verið við völd í 10 ár.

3 thoughts on “Morðhöfuðborgin Caracas”

  1. Mjög sorgleg tölfræði.

    Mig langar mjög að ferðast til svona borga eins og Caracas en svona upplýsingar láta mann hugsa sig tvisvar um.

    Sama með öll mannránin í Brasilíu.

    Kannski er ég bara svona paranoid.

  2. Einar, leiðréttu mig ef ég fer með rangt mál, fyrir 10 árum síðan vorum við saman í þessari borg.

    Þá var Hugo vinur þinn einmitt að sverja embættiseið sinn og þá vermdi Caracas þetta sama sæti í morðum.

    Nú er ég svosem enginn aðdáandi Chavez-ar en það er einhvern veginn þannig að þeir í Caracas hafa hreinlega alltaf verið fremstir meðal jafningja á þessu sviði, með eða án Chavez 🙂

  3. HHG, það er nú alltaf hægt að finna svæði í þessum borgum þar sem maður er ágætlega óhultur. Langflest morðin eru vanalega framin á afmörkuðum svæðum.

    En það breytir ekki því að Caracas er gríðarlega hættuleg.

    Emil, síðan að Chavez tók við hefur morðtíðnin aukist um 67%. Borgin var hættuleg fyrir, en núna er hún orðin langtum verri en áður.

Comments are closed.