« Að hata Ameríku? | Aðalsíða | 1. apríl »

Baseball!!!

mars 30, 2003

markprior.jpgVúhúúúú!! Baseball tímabilið byrjar á morgun. Eru ekki allir spenntir?? Ég veit að ég er allavegana hrikalega spenntur.

Mitt lið, Chicago Cubs er með nýjan þjálfara, Dusty Baker, sem kom San Fransisco Giants í World Series í fyrra. Margir eru bjartsýnir á það að Cubs verði mun betri í ár en í fyrra. Sumir blaðamenn telja meira að segja að þeir gætu komist alla leið í úrslitin.

Helsti styrkur Cubs eru nátturulega frábærir kastarar. Hópur fimm aðalkastarana er sennilega einn sá besti í allri deildinni og ekki skemmir að fjórir þeirra eru mjög ungir. Þetta eru Kerry Wood, Mark Prior (sem margir telja að gæti orðið næsta súperstjarnan í deildinni, sjá mynd), Matt Clement, hinn örvhenti Shawn Estes og hinn efnilegi Venezuela búi Carlos Zambrano.

Það er þó ljóst að til þess að liðið komist langt þá þarf sóknin að geta eitthvað. Ekki er nóg að snillingurinn Sammy Sosa hitti 50 home run einsog vanalega. Moises Alou þarf að leika mun betur en í fyrra og svo verða Cubs að treysta á að efnilegu byrjunarmennirnir þrír, Hee Seop Choi, Corey Patterson og Bobby Hill leiki mjög vel.

Þetta verður ábyggilega spennandi tímabil en ég verð því miður að fylgjast með því í gegnum netið í stað þess að geta farið á leiki einsog í fyrra. Öllum leikjunum er lýst á netinu og svo er eftir leiki hægt að nálgast vídeó með helstu atriðunum úr leikjunum. Annars er ein skemmtilegasta leiðin til að fylgjast með þessu öllu saman, bloggsíðan Cubs Reporter.

Einar Örn uppfærði kl. 11:59 | 257 Orð | Flokkur: Íþróttir



Ummæli (7)


Red Sox taka þetta í nefið - Ramirez/Garcia-Parra verða MVP - Chicago - isss :o)

Ragnar sendi inn - 30.03.03 20:34 - (Ummæli #1)

Vúhú, ég var pottþéttur á að enginn myndi kommenta á þessa færslu :-)

Það er hins vegar hámark bjartsýninnar að Manny Ramirez verði MVP :-)

Ég vona samt innilega að þeir nái að vinna sinn riðil, og að Yankees komist ekki áfram.

Einar Örn sendi inn - 30.03.03 21:00 - (Ummæli #2)

Þetta byrjar ágætlega hjá þínum mönnum (15-2)!

Það var líka gaman að lesa að Jeter hefði fokkað upp öxlinni á sér!

Gaman að svona löguðu!

Já og svo unnu Mariners Giants á sunnudag …voða voða gaman!

Voðalega voðalega gaman!

Afskaplega sérstaklega gaman!

Jensi sendi inn - 01.04.03 12:54 - (Ummæli #3)

skiptir máli að tímabilið hafi ekki verið byrjað þegar M´s unnu? Neips, það skiptir nebblega ekkert máli!

Jensi sendi inn - 01.04.03 13:01 - (Ummæli #4)

Jammm, 15-2 var snilld. Ég horfði meira að segja á þetta í gegnum netið á Real Player og gæðin voru alveg frábær. MLB.com er snilld.

Já. Yankees eiga eftir að tsjóka á þessu. :-)

Einar Örn sendi inn - 01.04.03 15:24 - (Ummæli #5)

ég vona bara að ekki sé um aprílgabb sé að ræða?

Jensi sendi inn - 01.04.03 15:30 - (Ummæli #6)

Mets taka thetta, eg hef mikla tru a theim og ætla ad fara ad sja thå a Shea Stadium. Piazza er minn madur og mun syna ykkur Chicago folki hvernig a ad spila hafnarbolta thegar hann kemur i heimsokn 15. july!

Dadi sendi inn - 09.04.03 09:36 - (Ummæli #7)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu