« Hamann | Aðalsíða | Leit.is »

Beta eyðir kommentum

júlí 30, 2003

Beta Rokk tók sig til og eyddi öllum kommentum eftir ákveðinn aðila á heimasíðunni sinni.

Ég er búinn að fylgjast með þessu undanfarið en einhver strákur/stelpa hefur verið að skilja eftir komment á síðunni hennar, þar sem hann/hún tjáði hrifningu sína á henni. Kommentin urðu smám saman grófari og að lokum gafst hún upp og eyddi öllu út.

Mér fannst þetta löngu hætt að vera sniðugt þegar viðkomandi fór að tala um að hann hafi verið að horfa á Betu á einhverjum tónleikum, hvað hún hafi verið sæt þar og svo framvegis. Þetta var frekar óhugnalegt þegar maður fór að hugsa útí þetta. Auðvitað gat þetta verið saklaust (grín) en maður veit aldrei.

Allavegana, þá hefur Beta fullan rétt á að taka út kommentin. Annars er athyglisvert að velta fyrir sér hvort bloggarar hafa rétt á að henda út kommentum af síðum sínum. Ég hef gert það nokkrum sinnum hér. Annaðhvort hafa kommentin verið kjánaleg (eintómir broskallar) eða dónaleg. Samt er spurning hvort Beta hefði ekki allavegana átt að taka afrit af síðunni sinni áður en hún eyddi kommentunum. Sum kommentin voru það gróf að gaurinn var farinn að hljóma einsog stalker. Kannski var þetta grín en það er erfitt að sjá hvort fólk er að grínast með svona skrifum.

Einar Örn uppfærði kl. 21:24 | 211 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (2)


Ég man líka eftir kommenti sem þú skrifaðir en eyddir síðan út síðar. Ölvun virtist vera ráðandi þegar þú skrifaðir kommentinn en líklega þynnka þegar þú eyddir honum.

En allaveganna er þetta síðan hennar Betu og hún má gera hvað sem er við hana!?

Óli sendi inn - 30.07.03 21:58 - (Ummæli #1)

Jamm, ég hef einu sinni að ég held eytt út fyllerískommentum. Ég er alltaf skíthræddur um að ég skrifi einhverja bölvaða vitleysu á þessa síðu þegar ég er fullur. :-)

Einar Örn sendi inn - 30.07.03 22:50 - (Ummæli #2)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu