« To do | Aðalsíða | Tími fyrir Keegan? »
Tími fyrir Keegan?
Alex Malone, frábær pistlahöfundur og Liverpool stuðningsmaður, skrifar góðan pistil í dag: Is Keegan the answer?.
Ég hef ekkert skrifað um Liverpool á þessu tímabili en ég er smám saman að tapa aftur mínu takmarkaða trausti á Gerard Houllier. Töp fyrir Charlton og Portsmouth og jafntefli gegn Aston Villa og Tottenham eru alls ekki ásættanleg úrslit.
Eins hefur Gerard Houllier á einhvern ótrúlegan hátt ekki ennþá fattað hversu lélegur framherji Emile Heskey er. Ég hata Heskey! Ég veit ekki hversu lengur ég get, sem harðurLiverpool stuðningsmaður, þolað að sjá Heskey í Liverpool búning í byrjunarliðinu í hverjum einasta leik. Það er ekki hægt að leggja þetta á mann mikið lengur.
Alex Malone kemst að svipaðri niðurstöðu og ég, ásamt mjög mörgum stuðningsmönnum Liverpool, eru að komast að: Nefnilega að það er kominn tími á að lokka aftur einn allra besta leikmann Liverpool, Kevin Keegan, í þjálfarastöðuna:
Maybe he should be given the chance to be one of the all time great Liverpool managers?
Burt með Houllier, fáum Keegan í staðinn!
Ummæli (5)
I hear you brother!
En ég væri nú samt til í að fá kannski hann Hector Cuper frekar en Keegan…
En that´s just me
Well, I would suggest that Heskey, Kewell, Smicer, Diouf, Gerrard, Finnan, Henchoz, Hyypia and Dudek would be in HIS first choice eleven.
Þetta er náttúrulega bull hjá Malone, Heskey var alls ekki í liðinu í upphafi tímabils og það var alveg ljóst að Baros hafði tekið sæti hans í liðinu.
Vonandi koma Cisse og Boumsong í Janúar.
Víst var Heskey í byrjunarliðinu í byrjun tímabilsins! Baros kom ekki inn fyrr en í þriðja leik að mig minnir.
Það breytir því ekki að þessar afsakanir hans eru óþolandi. Hvers vegna er liðið svona þreytt? Þeir voru að leika við einhverja áhugamenn frá Slóveníu í miðri viku! Varla neitt þrekvirki.
Ég er hættur að binda vonirnar við að einhver einn leikmaður komi og reddi öllu. Hvort sem Cisse kemur eða ekki, þá er Houllier áfram vandamálið.
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
echo `perl K:/Inetpub/danolroot/wwwroot/cgi-bin/backlink/backlink.pl "$HTTP_HOST" "2003-10-21-05-35-20.txt" "$HTTP_REFERER"`; ?>
Flokkar
Almennt | Bækur | Dagbók | Ferðalög | Hagfræði | Íþróttir | Kvikmyndir | Liverpool | Myndablogg | Myndir | Netið | Sjónvarp | Skóli | Stjórnmál | Tónleikar | Tónlist | Topp10 | Tækni | Viðskipti | Vinna |Leit:
Síðustu ummæli
- Matti Á.: Mea culpa, það er alveg hárrétt hjá þér. Heskey v ...[Skoða]
- Einar Örn: Víst var Heskey í byrjunarliðinu í byrjun tímabils ...[Skoða]
-
Matti Á.:
Well, I would suggest that Heskey, Kew
...[Skoða] - evah: I hear you brother! En ég væri nú samt til í að ...[Skoða]
- Strumpurinn: Biscan hefur reyndar verið að sýna áður óþekkta ta ...[Skoða]
Myndir:
Topp 10:

Ég nota MT 3.121
Biscan hefur reyndar verið að sýna áður óþekkta takta í haust. Þannig að þessi gagnrýni á hann er nú fremur óverðskulduð.
En Keegan á Anfield… það gæti alveg verið málið.
Strumpakveðjur