« Þér skuluð ekki ná í lög ólöglega | Aðalsíða | Pulsur »

Katrín og femínistar

júlí 04, 2003

Nýja kærstan mín, hún Katrín er komin í skemmtilegt stríð við femínista eftir nokkurt hlé. Katrín fer meðal annars á kostum með skotum á þær í dag og í gær.

Þetta femínistafélag virðist vera afskaplega barnalegt á köflum. Í dag hafa þær breytt síðu, sem Katrín benti á, í eitthvað diss á Katrínu og hennar ego. (það er búið að breyta síðunni aftur. Svona leit hún út með Katrínardissinu)

Á þessari síðu var nefnilega áður samansafn af greinum um femínista. Þar var meðal annars bent á skrif eftir Katrínu, mig og fleiri. Katrín fann síðuna og benti á hana. Femínistar láta að því liggja að Katrín hafi fundið síðuna á einhverju egó trippi.

Það er hins vegar afskaplega auðvelt að finna þessa síðu. Ég vænti þess að Katrín hafi fundið hana þegar hún var að fara yfir það hverjir vísa á síðuna hennar. Til dæmis sést á þessari færslu minni að "feministinn.is" hefur vísað á færsluna mína. Þegar ég slæ á þann link kemst ég beint á síðuna, sem er núna tileinkuð Katrínu.

Æi, þetta femínistafélag er hálf kjánalegt oft á tíðum. Það er þó fínasta skemmtiefni að lesa síðuna hennar Katrínar þegar hún skýtur á kynsystur sínar.

Einar Örn uppfærði kl. 11:13 | 201 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (4)


oh takk, gaman að sjá kærastann sinn tala um sig :-) þú hjálpar mér ef salvör ætlar að setjast á mig eða ekkva :-)

katrín sendi inn - 04.07.03 12:02 - (Ummæli #1)

Er þetta í alvörunni frá Feministafélaginu? Þetta er eins og mjög slæmur framaldskólabrandari. Það er nú erfitt að taka þetta félagsapparat alvarlega ef þetta er málflutningurinn.

Strumpakveðjur :-)

Strumpurinn sendi inn - 04.07.03 12:53 - (Ummæli #2)

Flott hjá þér að styðja við bakið á katrínu en bara svona til að að vara þig við þá er hún snögg að skipta um kærasta, hún var kærastan mín fyrir bara nokkrum dögum en er greinilega búin að skipta mér út fyrir þig

Óli sendi inn - 04.07.03 14:50 - (Ummæli #3)

æji óli þú getur ekki boðið mér uppá mexíkóskan mat í hvert mál þannig.. :-)

katrín sendi inn - 04.07.03 14:53 - (Ummæli #4)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu