« Bæ bæ geisladiskar | Aðalsíða | Niðurrifsstarfsemi »
Eeeh, hvort vinnur þú í Íslandsbanka eða Landsbanka?
september 30, 2003
Holy shit! Þvílíkur fjölbreytileiki á þessum framboðslista til formannkosninga í Heimdalli. Á þessum lista eru 12 manns. Hérna eru starfsvettvangar þeirra:
- Háskólanemar: 8 stykki, þar af 4 í lögfræði
- Bankastarfsmenn: 4 stykki!
Þannig að þessi breiði framboðslisti samanstendur af 8 háskólanemum og 4 bankastarfsmönnum. Með öðrum orðum: allir á listanum, sem eru í vinnu, vinna í banka! Gátu þeir ekki fundið að minnsta kosti einn, sem ynni ekki í banka? Bara einn?
Ekki það að ég hafi nokkurn skapaðan hlut á móti bankastarfsmönnum. Margir góðir vinir mínir starfa í bönkunum. En come on!
Nú læt ég afskiptum mínum af kosningamálum í Heimdalli lokið. Enda kemur þetta mér ekki rassgat við
Ummæli (0)
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
echo `perl K:/Inetpub/danolroot/wwwroot/cgi-bin/backlink/backlink.pl "$HTTP_HOST" "2003-09-30-17-59-24.txt" "$HTTP_REFERER"`; ?>