« Einar setur saman húsgögn á föstudagskvöldi | Aðalsíða | Vandamál með myndir á síðunni »

Hárið mitt, þriðji hluti

janúar 13, 2004

Á laugardaginn lét ég verða af því að snoða mig. Ég var kominn með algert ógeð á hárinu á mér. Nennti ekki lengur að hafa áhyggjur af síddinni eða greiðslunni eða öllu þessu kjaftæði.

Ég meina hei. Þannig að í mótmælaskyni er ég búinn að snoða mig. Er ekki ágætt að byrja þetta ár á upphafsreit?

Einar Örn með hár (á Jóladag)

Einar Örn snoðaður (12. janúar)

Uppfært: Hérna er þriðja myndin: Ég að snoða mig. Reyndar byrjaði ég bara sjálfur, en svo fékk ég aðstoð frá Þórdísi hárgreiðsluséní. :-)

Einar Örn uppfærði kl. 00:06 | 91 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (9)


Mjög flott… líka ekki of mikið tekið af!

Gummi Jóh sendi inn - 13.01.04 01:54 - (Ummæli #1)

Ekki nærri því eins slæmt og ég hélt :-)

Ágúst sendi inn - 13.01.04 03:36 - (Ummæli #2)

Ég sé enga mynd þar sem þú ert snoðaður, bara tvisvar sömu myndina þar sem þú ert að raka af þér hárið… :-)

Soffía sendi inn - 13.01.04 09:26 - (Ummæli #3)

Æ, smá klikk. Er búinn að laga þetta. Ef sama myndin kemur upp, smelltu þá bara á Refresh :-)

Einar Örn sendi inn - 13.01.04 09:44 - (Ummæli #4)

Cool. Ertu samt alveg snoðaður? Ég var að vonast eftir spegilgljáandi skalla og varð nú fyrir smáá vonbrigðum:-)

svansson.net sendi inn - 13.01.04 10:27 - (Ummæli #5)

Held að þú sért nú bara að herma eftir Harry Kewell en það er í góðu lagi ef svo er… ; ) nei nei en annars bjóst ég líka við gljáandi skinhead en þetta er mun betra auk þess sem skinhead er full berskjaldað í þessum djöfulsins kulda sérstaklega þegar menn eru að rölta í og úr bænum hálf skakkir…..

Friðrik sendi inn - 13.01.04 13:10 - (Ummæli #6)

Nú virkar þetta :-) Já, sammála fyrri ummælum, bjóst við gljándi skalla en þetta er samt flott :-)

Soffía sendi inn - 13.01.04 14:12 - (Ummæli #7)

Nei, dísus, það var ekki planið hjá mér að snoða mig alveg sköllóttann. Ég held að ég hefði fengið taugaáfall ef ég hefði gert það :-)

Þetta er nóg breyting í bili.

Einar Örn sendi inn - 13.01.04 14:17 - (Ummæli #8)

Þú hefðir átt að láta allt hárið fara. Ég prófaði fyrst að snoða mig þegar ég var 13 ára. Mér fannst það mjög þægilegt og flott að ég keypti mér rakvél og hef gert þetta reglulega í 2 ár. Þegar ég klippi mig þá læt ég allt hárið fjúka og er alveg sköllóttur. Langþægilegast og best. Engar áhyggjur af hárinu.

ég sendi inn - 29.01.04 10:47 - (Ummæli #9)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu