« Hverjum ertu lík(ur)? | Aðalsíða | Fegurðarsamkeppni og jakkaföt á djamminu »

Al Gore

maí 29, 2004

Fyrir alla þá, sem hafa áhuga á bandarískum stjórnmálum, mæli ég hiklaust með þessari snilldarræðu hjá Al Gore (klukkutíma vídeó - vel þess virði!).

Gore er óhræddur við að tala hreinskilið um það ömurlega ástand, sem er á stjórn Bandaríkjanna og hann krefst meðal annars afsagnar Rumsfeld, Wolfovitz of félaga. Í stað þess að vera hræddur við gagnrýni, sýnir Gore tilfinningar í ræðu sinni, sem hann sýndi alltof sjaldan í síðustu kosningabaráttu.

Þessi ræða sýnir að það er fullt af skynsömum Bandaríkjamönnum, sem eru alveg jafn hneykslaðir á Bush stjórninni og við Evrópubúar. Mæli með þessari ræðu, sérstaklega fyrir þá sem elska að fella dóma um alla Bandaríkjamenn út frá stefnu ríkisstjórnar Bush.


Liverpool Blogg: Heysel, 19 árum síðar.

Einar Örn uppfærði kl. 14:37 | 119 Orð | Flokkur: Stjórnmál



Ummæli (1)


Salkur

Gunnar sendi inn - 30.05.04 03:42 - (Ummæli #1)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu