« Take me home... | Aðalsíða | Ég HATA SNJÓ! »

It's a SIGN!

10. nóvember, 2004

Serverinn fór enn einu sinni í fokk og fullt af dóti týndist, þar á meðal gamla útlitið á þessari síðu.

Ég gæti nú alveg reynt að finna þetta á Makkanum mínum. En í staðinn ætla ég að taka þetta sem merki um að það sé kominn tími á að breyta þessu útliti. Á meðan að ég vinn í útlitinu þá verður þetta tímabundna útlitið á síðunni. Gamla útlitið er búið að vera á síðunni í tvo ár. Fokk, ég var enn í sambúð þegar ég setti upp það útlit. Djöfull er langt síðan!

Einar Örn uppfærði kl. 21:42 | 93 Orð | Flokkur: Netið



Ummæli (6)


Nýttu tækifærið og taktu þátt í byltingunni fyrst MT er farið að rukka fyrir þjónustuna. WordPress.

Daði sendi inn - 11.11.04 01:33 - (Ummæli #1)

…mjög ótengt og ekkert í samhengi við þessa færslu né þá e-h aðra færslu..bara forvitni…Af hverju “Serrano” ???

Flubb sendi inn - 11.11.04 19:39 - (Ummæli #2)

Hvað er málið með nafnlaus komment á þessari síðu??

Allavegana, hvað meinarðu? Ertu að spyrja hvaðan nafnið komi, eða eitthvað annað? :-)

Einar Örn sendi inn - 11.11.04 22:01 - (Ummæli #3)

..úbbs, átti nú ekkert að vera nafnlaust - e-h frá litlu sys…en já hvaðan kemur það og af hverju…hehe…fór allt í einu að spá í það og varð bara að spyrja :-)

Urðz sendi inn - 11.11.04 23:41 - (Ummæli #4)

Mér finnst nú að eyjamyndin verði að fá að njóta sín áfram á næsta “útliti” :-)

Hjördís sendi inn - 12.11.04 00:44 - (Ummæli #5)

Neibbs, Hjördís, Eyjamyndin mun fjúka.

Og Urðz? Ég ætla að setja inn færslu um söguna á bakvið nafnið, en er of slappur til að gera það núna :-)

Einar Örn sendi inn - 12.11.04 18:46 - (Ummæli #6)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu