« Ljómandi skemmtileg færsla | Aðalsíða | Afturvirkur pósitífismi »

Kappræður & djamm

10. október, 2004

Kláraði að horfa á Bush-Kerry kappræðurnar. Bush var umtalsvert betri en í fyrra skiptið, en að mínu áliti vann Kerry þetta aftur nokkuð örugglega. Bush var á tíðum pirraður og reyndi ítrekað að vera fyndinn, sem virkaði ekki alveg.

Gunni vinur minn benti á að Bush hefði virkilega vantað trommuleikara með sér. Þannig að í hvert skipti, sem hann reyndi að vera fyndinn hefði komið: “Da dam Tjissss”. Hann sagði alltaf brandarann og beið svo eftir að einhver myndi hlægja. Mjög fáir hlógu að bröndurunum, en þeir hefðu kannski virkað betur með trommunum.


Annars fór ég í gærkvöldi með vinum mínum útað borða og svo á Hverfisbarinn. Mjög skemmtilegt kvöld. Talaði við fullt af skemmtilegu fólki, þar á meðal Soffíu, sem ég hafði aldrei hitt áður og Óla, sem ég held að ég hitti í hvert skipti, sem ég fer á Hverfis. Ég fékk mér nokkra bjóra í fyrsta skipti í langan tíma og fann aðeins á mér, en ekki alvarlega. Að lokum vil ég enn endurtaka þá kröfu mína um að stelpur á föstu verði sérstaklega merktar á íslenskum skemmtistöðum. Það væri mun þægilegra að fá að vita það fyrirfram í stað þess að það komi fram í miðri setningu. Myndi án efa spara tíma og fyrirhöfn.

Einar Örn uppfærði kl. 18:11 | 208 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (2)


Takk fyrir síðast!! Ótrúlega gaman að hitta þig loksins :-) Ég hefði þó viljað koma betur fyrir, var hálf þvoglumælt og röflandi :-) :-)

Soffía sendi inn - 10.10.04 20:46 - (Ummæli #1)

Sömuleiðis! Annars, þá varstu ekkert þvoglumælt eða röflandi sko. Ég var ekki fullur, þannig að ég man þetta allt :-)

Einar Örn sendi inn - 10.10.04 22:00 - (Ummæli #2)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu