« Ljómandi skemmtileg færsla | Aðalsíða | Afturvirkur pósitífismi »
Kappræður & djamm
Kláraði að horfa á Bush-Kerry kappræðurnar. Bush var umtalsvert betri en í fyrra skiptið, en að mínu áliti vann Kerry þetta aftur nokkuð örugglega. Bush var á tíðum pirraður og reyndi ítrekað að vera fyndinn, sem virkaði ekki alveg.
Gunni vinur minn benti á að Bush hefði virkilega vantað trommuleikara með sér. Þannig að í hvert skipti, sem hann reyndi að vera fyndinn hefði komið: “Da dam Tjissss”. Hann sagði alltaf brandarann og beið svo eftir að einhver myndi hlægja. Mjög fáir hlógu að bröndurunum, en þeir hefðu kannski virkað betur með trommunum.
Annars fór ég í gærkvöldi með vinum mínum útað borða og svo á Hverfisbarinn. Mjög skemmtilegt kvöld. Talaði við fullt af skemmtilegu fólki, þar á meðal Soffíu, sem ég hafði aldrei hitt áður og Óla, sem ég held að ég hitti í hvert skipti, sem ég fer á Hverfis. Ég fékk mér nokkra bjóra í fyrsta skipti í langan tíma og fann aðeins á mér, en ekki alvarlega. Að lokum vil ég enn endurtaka þá kröfu mína um að stelpur á föstu verði sérstaklega merktar á íslenskum skemmtistöðum. Það væri mun þægilegra að fá að vita það fyrirfram í stað þess að það komi fram í miðri setningu. Myndi án efa spara tíma og fyrirhöfn.
Ummæli (2)
Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu
echo `perl K:/Inetpub/danolroot/wwwroot/cgi-bin/backlink/backlink.pl "$HTTP_HOST" "2004-10-10-18-11-35.txt" "$HTTP_REFERER"`; ?>
Takk fyrir síðast!! Ótrúlega gaman að hitta þig loksins
Ég hefði þó viljað koma betur fyrir, var hálf þvoglumælt og röflandi