« desember 31, 2004 | Main | janúar 03, 2005 »

2. janúar 2005

janúar 02, 2005

Já, Gleðilegt Ár!

Gamlárskvöld var það rólegasta í mörg ár. Einsog vanalega var ég heima hjá foreldrum. Fór svo heim til vinar míns einsog flest gamlárskvöld. Hlustaði á Dylan og talaði við skemmtilegt fólk. Var edrú allt kvöldið og keyrði heim.

Fór svo aftur heim til vinar míns á nýársdag og horfði á Liverpool tapa fyrir Chelsea. Það var ekki einsog ég hafði vonast eftir að þessi óheppni Liverpool yrði bara á árinu 2004. 2005 byrjar alveg hræðilega með tapleik og fótbroti snillingsins Xabi Alonso. Ég var þó ekkert svo þunglyndur eftir leikinn. Betra en ég átti von á.

Allavegana, ég mæli með grein Hallgríms Helgasonar í Fréttablaðinu á gamlársdag. Hallgrímur er snillingur og skrifar um fjölmiðlafrumvarpsruglið frá því í sumar. Alveg er magnað að hugsa til þess hver kolklikkað þetta sumar hans Davíðs var í raun. Legg til að fólk rammi greinina inn og lesi hana einu sinni á ári til að gleyma því aldrei úr hverju þessir Sjálfstæðisþingmenn eru gerðir.


Talaði við vin minn, sem býr á Tælandi áðan. Það samtal varð ekki til að leysa þær flækjur, sem mér finnst líf mitt vera í þessa stundina. Veit ekki hversu mikið ég á að skrifa á þessa síðu. Vinur minn var nýkominn frá Phuket, þar sem hann drakk íslenskt vatn og hjálpaði við að bera kennsli á lík. Ótrúlega magnað.


Reyndi að horfa á Terminator 3 í gærkvöldi en mikið afskaplega er það leiðinleg mynd. Reyndi þá að horfa á Chicago en gafst upp. Hún var þó ekki jafn leiðinleg og ég hafði búist við.

Úff, þarf að taka mér tak á þessu nýja ári. Það er svo margt að gerjast inní hausnum á mér, finnst einsog ansi margt þurfi að breytast. Kannski ef ég skrifa bara um það hérna, þá geri ég eitthvað í hlutunum í stað þess að hugsa bara um þá.

306 Orð | Ummæli (5) | Flokkur: Dagbók

Sekur eða saklaus?

janúar 02, 2005

Úr frétt af Reuters

The Bush administration is preparing plans for possible lifetime detention of suspected terrorists, including hundreds whom the government does not have enough evidence to charge in courts

Jahá! Þú ert semsagt saklaus uns sekt er sönnuð í Bandaríkjunum. Neeeema Bandaríkin haldi að þú sért hryðjuverkamaður, þá ertu strax sekur.

Four more years! Four more years!

59 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Stjórnmál

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33