« Sjónvarpsdagskrá | Aðalsíða | Draumar »

Ömurlegheit

7. febrúar, 2007

Ég er með stíflað nef og kvef.
Af því leiðir að ég er með hræðilegan hausverk
Og augun á mér eru þurr.
Og rauð og sjúskuð.
Og íbúðin mín er skítug
Og to do listinn minn í vinnunni er komin yfir heila blaðsíðu og stækkaði í dag þrátt fyrir að ég hafi verið á fullu.
Og mér leiðist.
Og ég nenni ekki að taka til,
en verð eiginlega samt að gera það í dag
Oooooooooooo

There, I said it…

Það hefur áður verið skjalfest hér að ég tek veikindum ekkert alltof vel. Ég fer niður í alveg ömurlega sjálfsvorkunn og gleymi öllu því góða og sannfærist um að allt sé ömurlegt.

En þessi veikindi eru allavegana ekkert miðað við hin stórkostlegu ömuglegheit sem ég upplifið í síðustu veikindum. Sjitt hvað það var leiðinlegt. Og vá hvað þessi færsla er leiðinleg. Góðar stundir.

Einar Örn uppfærði kl. 21:44 | 142 Orð | Flokkur: Dagbók



Ummæli (3)


úff hvað ég skil þig .. ég verð ótrúlega svartsýn eitthvað þegar ég er veik.. og.. þú ert karlmaður.. þið eigið alltaf aðeins meira bágt heldur en við sterkara kynið þegar þið verðið veikir.

Ekki nema að þetta sé allt act til að við séum að hjúkra ykkur hux :-)

majae sendi inn - 07.02.07 23:38 - (Ummæli #1)

Ég er að byrja minn þriðja dag frá vinnu, og missti þar að auki úr tvo daga í síðustu viku. I feel your pain. :-)

Kristján Atli sendi inn - 08.02.07 07:54 - (Ummæli #2)

Ég er á leiðinni kvefaður í djamm sumarbústaðarferð. Það verður fjör! :-)

Gaui sendi inn - 09.02.07 17:02 - (Ummæli #3)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Á þessum degi árið

2003 2002

Leit:

Síðustu ummæli

  • Gaui: Ég er á leiðinni kvefaður í djamm sumarbústaðarfer ...[Skoða]
  • Kristján Atli: Ég er að byrja minn þriðja dag frá vinnu, og misst ...[Skoða]
  • majae: úff hvað ég skil þig .. ég verð ótrúlega svartsýn ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.