« Endurhönnun | Aðalsíða | Ömurlegheit »

Sjónvarpsdagskrá

6. febrúar, 2007

Ég held að ég sé að verða veikur. Var að spila fótbolta áðan og þótt ég haldi því seint fram að ég sé mikill baráttu- og varnarjaxl þá verð ég að segja að ég var óvenju slappur í því að hlaupa tilbaka áðan. Var eiginelga alveg búinn eftir nokkra spretti.

Þannig að ég ákvað að leggjast niður í sófa og horfa á sjónvarpið. Ég er með fjórar stöðvar: RÚV (sem býður uppá kærustuna mína - búinn að sjá það), Sirkus, Sýn, Enska boltann og Skjá Einn.

Það sem vakti athygli mína er dagskrá ókeypis stöðvanna núna klukkan 20.

Sirkus: Entertainment Tonight. Þetta er nokkurn veginn það hræðilegasta rusl, sem hægt er að kaupa frá Bandaríkjunum. Ef að mig minnir rétt þá voru þessir þættir sýndir um 5 leytið í USA, sem þýðir að ekki nema þeir verstu í sjónvarpsglápi sem horfa á þættina. En hérna þykir þetta vera þess vert að sýna á besta tíma. AF HVERJU?

Skjár Einn: Skólahreysti. Sko, ég gæti kannski gert mér upp áhuga á Hreystis keppnum þar sem væri fullt af sætum stelpum yfir lögaldri. En þessi grunnskóla hreystis keppni getur ekki á nokkurn hátt talist spennandi sjónvarpsefni á besta mögulega tíma. Næst á S1: Raunveruleikaþáttur um fasteignasala. Og nei, þetta er ekki djók.

Ég finn mér eitthvað á netinu.

Einar Örn uppfærði kl. 20:12 | 215 Orð | Flokkur: Sjónvarp



Ummæli (10)


Við spyrjum um mann. Hann öðlaðist frægð in the late 70’s, en ekki fyrir þá tegund tónlistar sem hann er best þekktur fyrir í dag

Guðmundur sendi inn - 06.02.07 22:45 - (Ummæli #1)

Ha?

Einar Örn sendi inn - 06.02.07 23:11 - (Ummæli #2)

Ef þetta er það sem koma skal ætla ég bara að nýta mér yndislega internetið. :-)

Gaui sendi inn - 07.02.07 01:29 - (Ummæli #3)

Verð að benda þér á eitt sem miklum áhugamanni um amerískan fótbólta: Tókstu eftir því á mbl.is - í þessari frétt http://www.mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1252072 er “Superbowl” þýtt sem “Ofurskálarleikurinn” ???

Dama sendi inn - 07.02.07 10:07 - (Ummæli #4)

Og hvað er athugavert við það?

Steinþór Steingrímsson sendi inn - 07.02.07 13:07 - (Ummæli #5)

Mæli sterklega með www.dailymotion.com … Þegar ég er lasin legst ég yfir Whose line is it anyway? og er yfirleitt fljót að ná mér :-)

Fannsa sendi inn - 07.02.07 19:33 - (Ummæli #6)

Takk, Fanney. Kíki á þetta.

Einar Örn sendi inn - 07.02.07 21:55 - (Ummæli #7)
  • Anna Nicole Smith…

  • Anna Nicole Smith…

  • Barry Maaaaaaaniloooow!!

  • Anna Nicole Smith…

  • fullur karl (eða racist comment)…

  • og svo 200 kílóa krakki (eða annað live from the trailer park segment)

Er þetta ekki eins á hverjum einasta degi?? Ef ekki ennþá séð þátt(arbrot) þar sem Anna Nicole Smith kemur ekki við sögu.

Hryllingur.

Ágúst sendi inn - 07.02.07 22:59 - (Ummæli #8)

http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/americas/6344725.stm

Hvað ætli þetta verði efni í marga klukkutíma af E!?

Ágúst sendi inn - 08.02.07 21:20 - (Ummæli #9)

Ágúst: Þeim þáttum ætti fljótlega að fara að fækka þar sem Anna greyið kemur við sögu

Björn Friðgeir sendi inn - 09.02.07 05:46 - (Ummæli #10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Nýjustu Flickr myndirnar

Scriptless Flickr Badge
Scriptless Flickr Badge

Á þessum degi árið

2006 2004 2002

Leit:

Síðustu ummæli

  • Björn Friðgeir: Ágúst: Þeim þáttum ætti fljótlega að fara að fækka ...[Skoða]
  • Ágúst: Skoða]
  • Ágúst: * Anna Nicole Smith... * Anna Nicole Smith... * ...[Skoða]
  • Einar Örn: Takk, Fanney. Kíki á þetta. ...[Skoða]
  • Fannsa: Mæli sterklega með www.dailymotion.com ... Þegar é ...[Skoða]
  • Steinþór Steingrímsson: Og hvað er athugavert við það? ...[Skoða]
  • Dama: Verð að benda þér á eitt sem miklum áhugamanni um ...[Skoða]
  • Gaui: Ef þetta er það sem koma skal ætla ég bara að nýta ...[Skoða]
  • Einar Örn: Ha? ...[Skoða]
  • Guðmundur: Við spyrjum um mann. Hann öðlaðist frægð in the la ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.33

.