« Nýr Serrano | Aðalsíða | Uppáhaldslögin mín »

Bannað að gagnrýna!

31. maí, 2003

Þetta er nokkuð magnað: McDonald's sues 'slow food' critic. McDonald's á Ítalíu hefur kært gagnrýnanda fyrir að tala illa um matinn þeirra.

Ímyndið ykkur hvernig heimurinn yrði ef McDonald's ynnu!

Af hverju í ósköpunum er ég að blogga seint á laugardagskvöldi? Það er helvíti langt síðan ég hef verið einn heima á laugardagskvöldi. Mikið djöfull er það leiðinlegt! Mig hlakkar hins vegar alveg hrikalega mikið til að fá loksins að sofa út á morgun.

Ef þessi gaur, sem er með uppistand á boxkeppninni er fyndnasti maður landsins, þá er ég fluttur til Færeyja.

Einar Örn uppfærði kl. 22:51 | 94 Orð | Flokkur: Viðskipti



Ummæli (6)


Skiptir auðvitað engu máli hver vinnur. Fólk heldur áfram að hakka í sig McDonalds. Hluthafarnir halda áfram að græða. Lífið er gott

Ragnar sendi inn - 01.06.03 04:02 - (Ummæli #1)

Ef þú ert höfundur heimasíðu Ölgerðarinnar, þá ættir þú að vera í pökkun en ekki heimasíðugerð, þessi síða þín er til skammar, ekki bara fyrir þig heldur aðalega Ölgerðina. Sem er frábært fyrirtæki með “shit” heimasíðu(allt þér að kenna, skömmin þín).

Siggi

Sigurður Arnfjörð sendi inn - 01.06.03 04:59 - (Ummæli #2)

Vá… síðasta innlegg var mjög ómálefnalegt…. vona virkilega að það hafi verið grín hjá viðkomandi…. ef ekki, hvernig væri að vera málefnalegri Sigurður, og koma með rök?????!!!!!

Soffía mausaðdáandi sendi inn - 01.06.03 06:38 - (Ummæli #3)

Ragnar, fólk heldur áfram að borða á McDonald’s, það er ekki málið. Hins vegar myndi þetta setja fordæmi, þar sem hægt væri að kæra til dæmis kvikmyndagagnrýnendur fyrir slæma útreið bíómynda.

Og Sigurður, ég hef ákveðið að hér eftir mun ég kæra alla þá, sem gagnrýna síðuna mína!

Einar Örn sendi inn - 01.06.03 13:40 - (Ummæli #4)

Mér fannst gaurinn á boxkeppninni fyndinn. Hann var svo ófyndinn og misheppnaður að það var fyndið.

Ég hætti að horfa á boxið þegar hann byrjaði að grínast, þetta var of vandræðalegt!

egill sendi inn - 01.06.03 14:09 - (Ummæli #5)

En Einar, heimskulegar kærur á borð við þær sem þú nefnir eru einmitt mjög algengar í draumalandinu, landi frelsisins.

Og fólk er ekki bara kært, það missir starfið sitt ef það er ekki fullkomlega politically correct.

Hins vegar er það athyglisvert að svona nokkuð komi upp í Evrópu. Því miður sennilega upphafið á endalokunum. Evrópa mun in the end taka upp bandaríska siði, breytast í Ameríku. Djöfull verður það fokking frábært

Ragnar sendi inn - 01.06.03 15:51 - (Ummæli #6)

Ummælum hefur verið lokað fyrir þessa færslu


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2004 2000

Leit:

Síðustu ummæli

  • Ragnar: En Einar, heimskulegar kærur á borð við þær sem þú ...[Skoða]
  • egill: Mér fannst gaurinn á boxkeppninni fyndinn. Hann v ...[Skoða]
  • Einar Örn: Ragnar, fólk heldur áfram að borða á McDonald's, þ ...[Skoða]
  • Soffía mausaðdáandi: Vá... síðasta innlegg var mjög ómálefnalegt.... vo ...[Skoða]
  • Sigurður Arnfjörð: Ef þú ert höfundur heimasíðu Ölgerðarinnar, þá ætt ...[Skoða]
  • Ragnar: Skiptir auðvitað engu máli hver vinnur. Fólk heldu ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.