« Breaking News | Aðalsíða | Jafnrétti? »

Barca!

22. febrúar, 2006

Hólí sjitt hvað Barcelona er gott lið! Það er yyyyndislegt að sjá Chelsea liðið tekið í nefið og það er ekki leiðinlegt þegar það er annað af upphaáldsliðunum mínum, sem á í hlut.

Lionel Messi er 18 ára! Hann er fæddur 1987. Eru menn ekkert að grínast? Þvílíkur ótrúlegur snillingur.

Barca átti 23 skot á mark Chelsea í leiknum í kvöld. 23 skot á móti CHELSEA! Á útivelli. Já, þeir voru einum fleiri en það skýrir ekki allt. Ég segi það óhræddur að Barcelona er besta knattspyrnulið í heimi í dag. Held að aðeins Juventus gæti stöðvað þetta Barcelona lið í Meistaradeildinni.

Ég er búinn að vera hálf þunglyndur útaf Liverpoo tapinu í gær, en Barca tókst að koma mér aftur í gott skap. Húrra fyrir því. Og húrra fyrir því að ég verð á Nou Camp eftir tvær vikur til að horfa á seinni leikinn! HÚRRA! Já, og húrra fyrir fótbolta!

Einar Örn uppfærði kl. 21:50 | 152 Orð | Flokkur: Íþróttir



Ummæli (10)


Eftir því sem ég las af lýsingum á leiknum þá voru Chelsea fjórum færri. Dómari og aðstoðardómarar víst all svakalega slakir!

JBJ sendi inn - 22.02.06 22:16 - (Ummæli #1)

Verður mér hleypt á Nou Camp eftir 2 vikur?

Hagnaðurinn sendi inn - 22.02.06 22:20 - (Ummæli #2)

dómarinn var kanski ekki besti maður vallarins… en hann hefði líka getað dæmt 2 víti á chelskí… hrein og klár víti…

Árni sendi inn - 22.02.06 22:56 - (Ummæli #3)

vá hvað ég öfunda þig af að vera að fara á leikinn, bý einmitt í Barca og hef verið að lítast um eftir miðum!! bilað erfitt og geggjað dýrt!!!! flottur leikur í kvöld, Forca Barca!!!! :-)

Oddný sendi inn - 23.02.06 02:09 - (Ummæli #4)

Það er fráleitt að halda því fram að dómarinn hafi verið á bandi Barcelona í leiknum, þar sem Barca hefði getað fengið 2 vítaspyrnur í leiknum. Annars eru frekari umræður um þetta á Liverpool blogginu, þar sem að Kristján skrifar pistil

Einar Örn sendi inn - 23.02.06 08:51 - (Ummæli #5)

Alls óskilt þessu og smá forvitni Einar. Í gömlu bloggi ertu að velta fyrir þér kaupum á nýrri digital myndavél. Nú eru myndirnar úr mið-ameríkuferðalaginu þínu verulega góðar. Hvaða vél notaðirðu þar? Er að leita að góðri vél og öll ráð þegin.

Kári sendi inn - 23.02.06 14:39 - (Ummæli #6)

Kári, allar myndir sem eru teknar útí náttúrunni, á stóru túristastöðunum og slíkt eru teknar með Canon EOS 20D.

Allar myndir, sem eru teknar í borgum, á djammi og slíkt - tækifæri þar sem ég nennti ekki að burðast með stóru vélina eru teknar með 4 megapixla Canon Ixus, sem er pínkulítil en æðislega góð imbavél (man ekki nákvæmlega númerið á henni).

Ef þú hefur ákveðna mynd í huga get ég sagt þér hvaða myndavél var notuð.

Einar Örn sendi inn - 23.02.06 14:45 - (Ummæli #7)

Kári, ég á Canon Ixus 50 sem er líklega svipuð og Einar Örn á. Ég var að kaupa mér hana og hún er frábær! Geggjaðar myndir, lítil og þægileg. Ég fékk hana í Fríhöfninni á fínum díl….. Mæli sérstaklega með henni :-)

Hjalti sendi inn - 23.02.06 23:53 - (Ummæli #8)

Takk fyrir upplýsingarnar! Ég á einmitt Canon Ixus V3 vél sem hefur verið frábær síðustu tvö árin en fékk upp hina vafasömu og skelfilegu villu E18 sem virðist herja á Digital Canon vélar við minnsta tilefni. Það eru hreinlega hóplögsóknir í USA vegna þessara villu. Ég veit því ekki hvort ég tek sénsinn á Canon aftur.

Kári sendi inn - 24.02.06 11:16 - (Ummæli #9)

Hjalp!!!! Snilldin er daud og oll iTunes kaup bara horfinn…. nu eru god rad dyr!!!!!!!! Any bright fu$%&ng ideas

Genni sendi inn - 24.02.06 19:27 - (Ummæli #10)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2002

Leit:

Síðustu ummæli

  • Genni: Hjalp!!!! Snilldin er daud og oll iTunes kaup bar ...[Skoða]
  • Kári: Takk fyrir upplýsingarnar! Ég á einmitt Canon Ixu ...[Skoða]
  • Hjalti: Kári, ég á Canon Ixus 50 sem er líklega svipuð og ...[Skoða]
  • Einar Örn: Kári, allar myndir sem eru teknar útí náttúrunni, ...[Skoða]
  • Kári: Alls óskilt þessu og smá forvitni Einar. Í gömlu b ...[Skoða]
  • Einar Örn: Það er fráleitt að halda því fram að dómarinn hafi ...[Skoða]
  • Oddný: vá hvað ég öfunda þig af að vera að fara á leikinn ...[Skoða]
  • Árni: dómarinn var kanski ekki besti maður vallarins... ...[Skoða]
  • Hagnaðurinn: Verður mér hleypt á Nou Camp eftir 2 vikur? ...[Skoða]
  • JBJ: Eftir því sem ég las af lýsingum á leiknum þá voru ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.