« Hjónabönd samkynhneigðra í Bandaríkjunum | Aðalsíða | Tónlistin mín farin »

Fallegustu konur í heimi

26. febrúar, 2004

Einhverra hluta vegna hef ég ekkert skrifað um stelpur á þessari síðu í fleiri vikur. Ég verð greinilega að fara að hugsa minn gang.

Allavegana, vegna þess að ég nenni ekki að horfa á brúðkaup Tristu og Ryan (hvaða pulluhaus datt í hug að það yrði skemmtilegt sjónvarspefni), þá er hérna listi yfir 10 fallegustu konur í heimi að mínu mati. Það eru alveg ein eða tvær íslenskar stelpur, sem ég gæti sett þarna, en ég sleppi því og hef þetta bara heimsþekktar konur. Sleppi líka stelpunni, sem ég hitti í strætó í Caracas og svoleiðis.

  1. Natalie Imbruglia: Ef það er hægt að verða ástfanginn af tónlistarmyndbandi, þá held ég að það hafi gerst þegar ég sá Torn í fyrsta skipti.
  2. Elizabeth Hurley: Ótrúleg!
  3. Audrey Hepburn: Ein fallegasta kona allra tíma. Þeir sem efast ættu að horfa á Breakfast at Tiffany's
  4. Angelina Jolie: Fær reyndar mínusstig fyrir að hafa leikið í leiðinlegustu mynd allra tíma, Tomb Raider
  5. Elsa Benitez
  6. Brooke Burke: Hún fékk mig til að horfa á "Wild On" á E! sjónvarpsstöðinni ansi mörg kvöld í röð.
  7. Elle McPherson
  8. Britney Spears: Já, Britní. Ég er ennþá þeirrar skoðunar að við myndum passa alveg ýkt vel saman sem par. Hún er ennþá á lausu og ég er ennþá á lausu, svo það er alltaf von. Samt, þegar við byrjum saman þá verður hún ábyggilega ýkt fúl yfir því að ég skuli hafa sett hana í 8. sæti.
  9. Gisele Bundchen
  10. Jennifer Aniston

Ok, svona lítur þetta út. Ykkur er velkomið að hneykslast á þessu vali mínu. Af hverju ég hafi valið Britney en sleppt einhverri annarri og svo framvegis. :-)

Vá, hvað ég á eftir að fá mörg "hit" frá Leit.is vegna þessarar færslu. Það verður gaman að skoða leitarstrengina, sem leiða menn inná þessa síðu

Einar Örn uppfærði kl. 23:47 | 301 Orð | Flokkur: Topp10



Ummæli (13)


Þessar dökkhærðu alveg í miklum meirihluta :-)

Hjördís sendi inn - 27.02.04 00:58 - (Ummæli #1)

Jamm, ég fattaði það eftirá að það var bara ein ljóska þarna, hún Britney mín.

Annars fíla ég alveg ljóshærðar stelpur sko. Þetta kom mér eiginlega dálítið á óvart :-)

Einar Örn sendi inn - 27.02.04 14:15 - (Ummæli #2)

Þú gleymir að nefna Denise Richards sem er sú flottasta í bransanum.

Kjarri sendi inn - 28.02.04 04:24 - (Ummæli #3)

Ertu eitthvað klikkaður? Denise Richards???? Hverja ætlarðu að taka útaf listanum fyrir hana? :-)

Einar Örn sendi inn - 01.03.04 00:06 - (Ummæli #4)

Ef þú værir ekki svona rosalega einhleypur, hvar (ef einhversstaðar) á þennan lista myndirðu setja kærustuna þína?

Hildur sendi inn - 01.03.04 01:27 - (Ummæli #5)

Það færi væntanlega eftir því hvernig sú ágæta stelpa liti út :-)

Ef ég væri svo heppinn að vera með stelpu, sem væri sætari en Natalie Imbruglia, þá færi hún í efsta sæti. Hef samt alltaf verið mjög skeptískur á gaura, sem segja kærustuna sína vera fallegustu konu í heimi. :-)

Einar Örn sendi inn - 01.03.04 09:51 - (Ummæli #6)

Ok, var bara að kanna hvort þú værir einn þeirra :-)

Hildur sendi inn - 01.03.04 13:24 - (Ummæli #7)

Ég get ekki betur séð en að þetta séu tvær “týpur” + Britney.

Talandi um stelpur í strætó í Caracas, þá sá ég einmitt fallegustu stelpu sem ég hef séð í neðanjarðarlestinni í Brussel í síðustu viku. Hún var jafnvel fallegri en Audrey Hepburn, sem var einmitt frá Brussel líka.

Ágúst sendi inn - 02.03.04 02:57 - (Ummæli #8)

Má ég spyrja hverjar þær tvær típur eru. Ég átta mig ekki á mörgu sameiginlega með þessum stelpum nema það að þær eru nær allar dökkhærðar :-)

Já, og svo er stelpan í strætónum í Caracas náttúrulega efni í aðra færslu :-)

Einar Örn sendi inn - 02.03.04 16:23 - (Ummæli #9)

Týpa 1: Natalie Imbruglia, Audrey Hepburn, Elizabeth Hurley (liggur ekki í augum uppi en þegar maður fer að spá í það jú)

Týpa 2: , Elsa Benitez, Elle McPherson, Gisele Bundchen, Jennifer Aniston og kannski síst Brooke Burke.

Britney gæti talist týpa 2, það eru samt til svo margar útgáfur af Britney að maður veit eiginlega ekki hvaða þú ert helst að tala um :-) Angelina Jolie sker sig mest úr þegar betur er að gáð, enda mjög spes í útliti.

Ágúst sendi inn - 02.03.04 22:54 - (Ummæli #10)

Þetta er ágætur listi. Hefði þó vilja sjá Elishu Cuthbert þarna og þá í skiptum fyrir t.d. Brooke Burke sem gerir lítið fyrir mig þótt hún sé tvímælalaust falleg stúlka. Charlize Theron hefur líka komið sterk inn undanfarið, og ítalskar gyðjur eins og Monica Bellucci og Maria Grazia Cucinotta eru hlunnfarnar svo ekki sé meira sagt. Hurley og að mér finnst Hepburn mættu fjúka í staðinn.

My 2 cents.

Geir sendi inn - 10.03.04 16:54 - (Ummæli #11)

Það má henda þeim öllum út fyrir Elishu Cuthbert, eða Kim Bauer eins og ég kýs að kalla hana.

Hagnaðurinn sendi inn - 16.03.04 12:21 - (Ummæli #12)

heheh… Angelina Jolie á bara Fyrsta sætið… kemur bara ekkert annað til greina:-) :-) :-) :-)

Hafdízz.... sendi inn - 27.05.04 00:42 - (Ummæli #13)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2002

Leit:

Síðustu ummæli

  • Hafdízz....: heheh... Angelina Jolie á bara Fyrsta sætið... kem ...[Skoða]
  • Hagnaðurinn: Það má henda þeim öllum út fyrir Elishu Cuthbert, ...[Skoða]
  • Geir: Þetta er ágætur listi. Hefði þó vilja sjá Elishu C ...[Skoða]
  • Ágúst: Týpa 1: Natalie Imbruglia, Audrey Hepburn, Elizabe ...[Skoða]
  • Einar Örn: Má ég spyrja hverjar þær tvær típur eru. Ég átta ...[Skoða]
  • Ágúst: Ég get ekki betur séð en að þetta séu tvær "týpur" ...[Skoða]
  • Hildur: Ok, var bara að kanna hvort þú værir einn þeirra ...[Skoða]
  • Einar Örn: Það færi væntanlega eftir því hvernig sú ágæta ste ...[Skoða]
  • Hildur: Ef þú værir ekki svona rosalega einhleypur, hvar ( ...[Skoða]
  • Einar Örn: Ertu eitthvað klikkaður? Denise Richards???? Hve ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.