« janúar 13, 2005 | Main | janúar 16, 2005 »

Þunglyndi og markverðir frá Póllandi

janúar 15, 2005

Það er ekki á mann leggjandi að byrju þynnkudag á því að Liverpool tapi fyrir Man United. Ég er búinn að vera hálf þunglyndur í allan dag. Var á djammi í gær en reif mig upp þegar nokkrir vinir komu í heimsókn til að horfa á leikinn. Leikurinn var svo ömurlegur. Skap mitt er sambland af þreytu, þynnku og þessu tapi. Semsagt ekki skemmtilegur kokteill.

Ætla að fara snemma að sofa í kvöld, þar sem ég held að frekari mannleg samskipti séu ekki æskileg. Nokkuð góður mælikvarði á það er þegar mamma fer að kvarta yfir því að ég sé alltof daufur.


Það var semsagt starfsmanndjamm á Serrano í gær. Mjöög skemmtilegt. Upphaflega ætlaði ég ekki að drekka, en það klikkaði. Fór svo í bæinn með fólkinu. Allir vildu fara á Gaukinn, þar sem það virðist vera staður fyrir uuuuunga fólkið. Semsagt staður þar sem öllum er hleypt inn. Dyravörðurinn spurði mig um skilríki og ég spurði tilbaka: Ertu að spyrja MIG um skilríki. Hann leit á mig og sagði, nei drífðu þig bara inn.

Ég meina þetta var einsog á þriðjubekkjarkvöldi í Verzló. Ég er nú alltaf hræðilega slappur í því að segja til um aldur stelpna (mér finnst þær alltaf vera miklu eldri en þær eru) en strákarnir þarna virtust margir hverjir ekki vera mikið eldri en 14. Eða það fannst mér allavegana. Ég gafst fljótt upp. Var líka ekkert alltof hress eftir veikindin. Hafði verið í fínu stuði í partíinu, en hafði greinilega ekki úthaldið með mér. Ákvað bara að fara heim, þrátt fyrir að ég hafi nú ekki verið mjög drukkinn.


Á mánudaginn er ég að fara til Póllands, heimalands Jerzy fokking Dudek og verð í þrjá daga í Varsjá. Ég hef alltaf haft ákveðna fordóma gagnvart Póllandi, sem ég veit ekki almennilega af hverju eru til staðar en mig hlakkar samt til að fara til Póllands. Ég er bölvaður asni að nýta ekki ferðina betur og reyna að túristast eitthvað, en maður ætti þó að sjá eitthvað. Kannski verð ég alveg heillaður og losna við alla mína fordóma. Hver veit?


Kannski er þetta þynnkan, sem talar. Eeeen, mér finnst Fall to Pieces með Velvet Revolver vera helvíti flott lag. Ég fíla Slash gítarinn, enda var ég mikill Guns ‘n Roses aðdáandi. Ég var líka ýkt mikill Stone Temple Pilots aðdáandi, þannig að mér líður einsog ég sé 15 ára all over again þegar ég hlusta á þetta.

402 Orð | Ummæli (4) | Flokkur: Dagbók

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33