« mars 02, 2006 | Main | mars 13, 2006 »

Fótboltaferð

mars 05, 2006

Ég er að fara út í fyrramálið í massíva fótboltaferð. Vona að hún verði jafn vel heppnuð og síðasta fótboltaferð.

Planið er semsagt að fara út á morgun til Barcelona. Þar verð ég á þriðjudag á fundum hjá fyrirtæki, sem ég sé um að markaðssetja hér á landi, og svo um kvöldið fer ég í boði þess fyrirtækis á Barcelona-Chelsea á Nou Camp!

Þetta er náttúrulega leikur ársins hingað til og ég er orðinn alveg fáránlega spenntur. Ég hef séð Barcelona spila 3svar áður á Nou Camp, en aldrei í jafnstórum leik og núna.

Á miðvikudaginn á ég svo flugmiða frá Barcelona til Liverpool. Þar mun ég á miðvikudagskvöld vera mættur í Kop stúkuna til að horfa á Liverpool-Benfica. Þar þarf Liverpool að vinna upp eins marks tap frá fyrri l eiknum og er ég bjartsýnn á að það gerist. Ég er einnig nokkuð viss um að Robbie Fowler mun skora sitt fyrsta mark í þeim leik. Gott ef það verður ekki bara beint fyrir framan nefið á mér. :-)

Allavegana, býst ekki við að uppfæra fyrr en ég kem heim.

181 Orð | Ummæli (10) | Flokkur: Dagbók

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33