« júlí 05, 2001 | Main | júlí 09, 2001 »

Vikan

júlí 06, 2001

Þar sem það er kominn föstudagur er ágætt að segja frá því hvað við Hildur höfum verið að gera síðustu viku, en þetta er búin að vera mjög skemmtileg vika.

Síðasta föstudag fórum við í partí heim til Ryan, Kate og Liv, en þau eru vinir okkar, sem voru að flytja út úr íbúðinni sinni. Þau ákváðu því að halda partí, því leigusalinn gat lítið kvartað eftir að þau voru flutt út. Allavegana var partíið skemmtilegt en það endaði niðrá Northwestern ströndinni þar sem nokkrir ofurhugar fengu sér sundsprett í Michigan vatni.

Á laugardag fórum við Hildur niður á Oak Street Beach, þar sem við lágum í smá tíma og röltum svo niður í Grant Park þar sem Taste of Chicago hátíðin stendur yfir. Þessi hátíð er alger snilld. Yfir hundrað veitingastaðir frá Chicago eru með mat til sölu, allt frá Chicago-style deep-dish pizzum til afrískra hrísgrjóna. Við Hildur löbbuðum á milli staða og smökkuðum alls kyns mat. Allur garðurinn er yfirfullur af fólki og fyrir utan matinn var hægt að hlusta á fullt af tónleikum.

Eftir matinn fórum við svo á tónleika með frönsku sveitinni Air, sem voru haldnir í The Vic. Tónleikarnir voru snilld. Reyndar byrjuðu þeir á því að einhver franskur krakkhaus, Sebastian Tellier framdi einhverja tónlistargjörninga. Hann var þó fljótur að drífa sig í burtu og snillingarnir í Air komu svo fram. Þeir byrjuðu á lögum af nýjustu plötunni og tóku svo lög af þeirri plötu í bland við lög af Moon Safari. Þessir tónleikar voru frábærir og mörg lögin þeirra (einsog Electronic Performers) hljóma jafnvel enn betur "live" heldur en á plötu.

Á 4.júlí var náttúrulega þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna. Við byrjuðum því 3.júlí að fara með nokkrum vinum okkar niður í Grant Park þar sem aðalflugeldasýningin var haldin. Þar var alveg fáránlega mikið af fólki til að fylgjast með dýrðinni og hlusta á sinfoníutónlist í takt við sýninguna. Á sjálfan 4.júlí vorum við Hildur ýkt dugleg og línuskautuðum meðfram vatninu alveg frá Belmont niður í Grant Park, sem er um 2 klukkutíma ferð. Í Grant Park horfðum við á tónleika með Wilco, sem voru nokkuð góðir og svo fengum við okkur fullt gott að borða.

361 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Dagbók

Neytendamarkaður fyrir tölvur

júlí 06, 2001

Mjög athyglisverð grein á abcnews.com. Í henni er fjallað um það hversu lítið tölvufyrirtæki græða á því að selja beint til neytenda. Hagnaður tölufyrirtækja í dag byggist fyrst og fremst á sölu til fyrirtækja.

Höfundur greinarinnar spáir því að tvö fyrirtæki muni ráða einkatölvumarkaðinum í framtíðinni, Apple og Sony. Athyglisverð ályktun, en samt ekki eins vitlaus og manni virðist í fyrstu. Stærstu fyrirtækin í einkatölvuiðnaðinum, Compaq, Dell og HP hafa verið að færa sig æ meira inná fyrirtækjasviðið. Talað er um að Compaq hafi í huga að hætta algerlega að framleiða tölvur fyrir heimilin. Gateway, sem framleiðir nær einungis fyrir heimilin, hefur átt í miklum erfiðleikum undanfarið og hafa þeir m.a. verið að loka mörgum "Gateway Country" búðum hér í Bandaríkjunum.

Það er þó ljóst að Apple og Sony þurfa að vinna í því að tengja betur saman tæki einsog lófatölvur við einkatölvuna til að ná góðri stöðu á heimilismarkaðinum. Það er mikið talað um það þessa dagana að Apple hyggist gefa út lófatölvu, en þeir voru einmitt frumkvöðlar á því sviði fyrir nokkrum árum.

176 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Tækni

Undirtónablikk

júlí 06, 2001

Heimasíða Undirtóna nær, að mínu mati, hámarki í óþolandi blikkandi auglýsingum.

11 Orð | Ummæli (0) | Flokkur: Netið

EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2004 2003 2000

Leit:

Síðustu ummæli

Gamalt:



Ég nota MT 3.33