« Brussel | Aðalsíða | Stúdentablaðið? »

Vaknaður?

11. apríl, 2006

Þetta finnst mér grúví: Laugardagsviðtal Blaðsins var við Andra Snæ Magnason, höfund Draumalandsins. Í viðtalinu, sem fjallar um bókina, kemur þessi spurning:

Draumalandid-eoe_bladid.jpg

Já, ég er vaknaður. Og ef ég hefði haft meiri tíma, þá væri ég sennilega búinn að skrifa meira um bókina. En ég er bara búinn að vera svo skemmtilega upptekinn af öðru. Það lagast væntanlega í páskafríinu.


Hitti í gær bloggara, sem ég hef kommentað hjá og sem hefur kommentað hjá mér. Heilsaði honum ekki. Var ekki viss um hvort það væri við hæfi. Þannig að ég horfði bara asnalega á hann. Ég þarf sennilega að vera drukkinn til að heilsa fólki, sem ég þekki bara af internetinu.

Einar Örn uppfærði kl. 23:12 | 111 Orð | Flokkur: Bækur



Ummæli (4)


Skemmtilegt þegar fólk nefnir mann í fjölmiðlum. En hann hefði nú mátt henda slóðinni inn á síðuna þína. :-)

Gaui sendi inn - 12.04.06 01:21 - (Ummæli #1)

Kannast við þetta að rekast á netfólk.

Svansson sendi inn - 12.04.06 10:58 - (Ummæli #2)

Hvað ætli margir sem lesi þessa ágætu áróðursbók (því hún er einmitt það og góð sem slík) hafi skipt um skoðun eftir á..?

Hvers vegna þurfti fólk að lesa bók eða hlusta á einn rithöfund í útvarpi til að átta sig á að Kárahnjúka-álveravæðing þjóðarinnar væru stórkostlegasta slys og hryðjuverk í sögu lands og þjóðar?

Virðist svolítið eins og þjóðin geti hreinlega ekki myndað sér skoðanir sjálf, geti ekki horft með gagnrýnum augum á hlutina, nenni ekki að mótmæla og aldrei í verki (á kjörstað)… (með fullri virðingu fyrir hinum örfáu sem þetta á ekki við um).

Þurfti bók til að fólk færi að skammast sín?

Ragnar sendi inn - 13.04.06 04:41 - (Ummæli #3)

Ragnar, ég er búinn að skrifa pistil um mitt svar við þessari spurningu þinni. Birti hann hérna eftir helgi, þar sem hann birtist líka á annarri síðu. :-)

Einar Örn sendi inn - 13.04.06 16:32 - (Ummæli #4)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: Ragnar, ég er búinn að skrifa pistil um mitt svar ...[Skoða]
  • Ragnar: Hvað ætli margir sem lesi þessa ágætu áróðursbók ( ...[Skoða]
  • Svansson: Kannast við þetta að rekast á netfólk. ...[Skoða]
  • Gaui: Skemmtilegt þegar fólk nefnir mann í fjölmiðlum. E ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.