« Change of plans | Aðalsíða | Ég dýrka Flickr! »

Myndbönd í ræktinni

24. ágúst, 2006

Á morgnana þegar ég hleyp inní World Class er ég vanalega með iPod í eyrunum. Oft á ég erfitt með að einbeita mér og augun leita á sjónvarpstækin þar sem ekki er nú mikið úrval af sætum stelpum á réttum aldri á þeim tíma, sem ég er þarna rétt fyrir hádegið (þó var smá vonarglæta í morgun, en það er annað mál).

Allavegana, maður byrjar ósjálfrátt að horfa á sjónvarpið þar sem PoppTV er vanalega í gangi.

Til þess að gera þessi langhlaup bærilegri fyrir mig, þá legg ég til við stjórn PoppTV eftirfarandi breytingar:

BANNA ALGERLEGA ÞETTA MYNDBAND MEÐ COLDPLAY!!!



Hafa í staðinn myndbönd með Pussycat Dolls á repeat allan tímann. Sérstaklega myndbönd þar sem aðalsöngkonan er nánast sú eina, sem birtist. Meira af henni, minna af hinum - segi ég! Það má t.d. nota þetta myndband.

Takk.

Einar Örn uppfærði kl. 18:48 | 139 Orð | Flokkur: Sjónvarp



Ummæli (13)


langt síðan maður hefur séð blikkandi setningar.. fólki ætti að nota þetta meira :-)

katrín sendi inn - 24.08.06 20:17 - (Ummæli #1)

Jammm, ég er að reyna að starta nýju trendi :-)

Einar Örn sendi inn - 24.08.06 20:48 - (Ummæli #2)

Þú og þínar sætu stelpur. Pínu sikk en pínu kjút líka.

Kristín sendi inn - 24.08.06 23:19 - (Ummæli #3)

What? Hvað er sikk? Þú verður að útskýra.

Einar Örn sendi inn - 24.08.06 23:39 - (Ummæli #4)

það er bara svoooo gaman að horfa á fínt fólk af hinu kyninu mmmmm

katrín sendi inn - 25.08.06 11:20 - (Ummæli #5)

Þetta myndband með Coldplay er algjör snilld og það á alls ekki að banna það :-)

GSB sendi inn - 25.08.06 13:46 - (Ummæli #6)

Viltu meina að tónlistarmyndbönd snúist ekki um tónlistina :-O

Ég trúi ekki að þessar fimleikakúnstir séu gerðar af konu á níræðisaldri.

Ef eitthvað mælir gegn þessu myndbandi er það að lagið er bara leiðinlegt og óspennandi. Veitir ekki af einhverri spennu í myndbandinu þess vegna. Maður hálfpartinn bíður eftir að kerlingin slitni í sundur þegar hann spinnur henni í hringi :-)

Ágúst sendi inn - 25.08.06 14:35 - (Ummæli #7)

Viltu ekki bara fara alla leið og biðja um klámmyndir á skjáina í ræktinni?

Það er í aðalatriðum það sem þú ert að biðja um, ekki satt? :-)

Kristján Atli sendi inn - 25.08.06 17:53 - (Ummæli #8)

Ágúst, ég hlusta ekki á tónlistina í myndböndunum, heldur er ég með mína eigin tónlist eða hljóðbækur. Horfi svo á myndböndin ef þau eru af réttri gerð :-)

Einar Örn sendi inn - 25.08.06 17:58 - (Ummæli #9)

Það er í raun bannað í dag að tala um sætar stelpur eins og eitthvað staðlað form. Þú veist það að fegurðin kemur innan frá? Þú hefur áður lent í reiðum konum yfir svona tali hér á síðunni svo þú veist alveg hvað ég meina. Skemmtilegar Parísarmyndirnar þínar, svolítið fáar, en góðar.

Kristín sendi inn - 27.08.06 06:46 - (Ummæli #10)

Æi, ég nenni ekki einu sinni að þræta við þetta fólk, sem gagnrýnir aðra fyrir að tala um útlit. Það fyrsta sem hrífur mig við stelpur er ytra útlit. Ég tel að það sé eins með mig og 90% allra. Svo er aftur á móti annað hvernig útlit fólk hrífst af.

Svo þarf varla að taka það fram að það er ekki hægt að byggja sambönd á ytra fegurð. En já, ég er búinn að fara yfir þetta svo oft á þessari síðu. :-)

Svo með það að tala um sætar stelpur sem staðlað form, þá gefa vissir einstaklingar sér þær forsendur að þegar ég tala um sætar stelpur, þá falli þær allar inní einhvern ákveðinn pakka. Plús það að þetta er allt skrifað meira og minna í gríni.

Varðandi Parísarmyndirnar, þá eru þær um 60 talsins en flestar eru (af ákveðinni ástæðu) bara leyfðar vinum og fjölskyldu.

Einar Örn sendi inn - 27.08.06 10:29 - (Ummæli #11)

Ég held ég hafi alveg náð því að þetta var svona grín og ætlaði mér heldur aldrei út í umræður um þetta “mál”… Ég skil að þú viljir ekki sýna öllum allt, alveg fyrirgefið þetta allt saman og allir góðir.

Kristín sendi inn - 28.08.06 18:00 - (Ummæli #12)

:-)

Einar Örn sendi inn - 28.08.06 18:11 - (Ummæli #13)
Senda inn ummæli

Athugið að það tekur smá tíma að hlaða síðuna aftur eftir að ýtt hefur verið á "Staðfesta".

Hægt er að nota HTML kóða í ummælunum. Hægt er að nota a href, b, br, p, strong, em, ul, li og blockquote

Ég áskil mér allan rétt til að eyða út ummælum, sem eru á einhvern hátt móðgandi, hvort sem það er gagnvart mér sjálfum eða öðrum. Þetta á sérstaklega við um nafnlaus ummæli.

Nafn:


Tölvupóstur (ath. póstfangið birtist ekki á síðunni):


Heimasíða (ekki nauðsynlegt):
:smile: :biggrin: :biggrin2: :blush: :confused: :laugh:

:mad: :rolleyes: :shock: :sad: :tongue: :wink:

Ummæli:


Muna upplýsingar? -


EOE.is:

Blaður um hagfræði, stjórnmál, íþróttir, netið og mín einkamál.

Á þessum degi árið

2005 2001 2000

Leit:

Síðustu ummæli

  • Einar Örn: :-) ...[Skoða]
  • Kristín: Ég held ég hafi alveg náð því að þetta var svona g ...[Skoða]
  • Einar Örn: Æi, ég nenni ekki einu sinni að þræta við þetta fó ...[Skoða]
  • Kristín: Það er í raun bannað í dag að tala um sætar stelpu ...[Skoða]
  • Einar Örn: Ágúst, ég hlusta ekki á tónlistina í myndböndunum, ...[Skoða]
  • Kristján Atli: Viltu ekki bara fara alla leið og biðja um klámmyn ...[Skoða]
  • Ágúst: Viltu meina að tónlistarmyndbönd snúist ekki um tó ...[Skoða]
  • GSB: Þetta myndband með Coldplay er algjör snilld og þa ...[Skoða]
  • katrín: það er bara svoooo gaman að horfa á fínt fólk af h ...[Skoða]
  • Einar Örn: What? Hvað er sikk? Þú verður að útskýra. ...[Skoða]

Gamalt:



Ég nota MT 3.2

.